mánudagur, desember 26, 2005

Með lífið að láni

Eins og oft áður fékk ég margar góðar gjafir nú um jólin, þó að í mínum huga sé stærsta gjöfin að fá að vera samvistum við ástvini mína. Eitt af því sem hefur tilheyrt jólunum, nánast frá því að ég man eftir mér, er að fá góðar bækur að gjöf og voru þessi jól engin undantekning frá þeirri reglu.

Ein þeirra þriggja bóka sem mér áskotnaðist þessi jól ber titilinn; "Með lífið að láni", eftir þá Jóhann Inga Gunnarsson og Sæmund Hafsteinsson, sálfræðinga. Mig langar að grípa aðeins niður í bókina með orðunum "hef ég ekki alltaf verið að" .............:

Að ala sjálfan sig upp

Mikið hefur verið rætt um uppeldishlutverk foreldra og skóla. Minni gaumur hefur verið gefinn að því uppeldi sem hjá flestum hefst um tvítugt og stendur alla ævi. Það uppeldi er á ábyrgð okkar sjálfra......

Enginn árangur án aðgerða

Við hittum einstaklinga og fjölskyldur sem einhverra hluta vegna vonast eftir töfralausnum, lausnum sem einhver annar getur boðið í fljótheitum. En málið er ekki svo einfalt því árangur krefst vinnu. Lausn er sjaldnast til í pilluformi. Það er ekki möguleiki að styrkjast, efla sjálfstraust, auka sjálfsstjórn, þroskast eða vinna úr samskiptavanda án þess að leggja eitthvað á sig. Ef verið er að hugsa um árangur þarf að bæta við hugsuninni "ég er tilbúinn að leggja á mig það sem með þarf". Það að vera raunverulega tilbúinn að leggja á sig erfiði til að ná eftirsóknarverðum árangri þýðir að við frestum ekki hlutunum, heldur hefjumst strax handa. Við frestum því ekki til morguns eða bíðum eftir rétta deginum. Það er alltaf hægt að byrja á einhverju, huga að undirbúningi, afla sér fróðleiks, hafa samband við fólk, skipuleggja, yfirvinna hindranir eða ganga frá. Mestum árangri náum við með vinnusemi, þrautsegju og þolinmæði.

Vinátta

Sá getur talist heppinn sem eignast hefur þrjá góða vini um ævina. Þeir þurfa ekki að vera fleiri........ Vinátta er líka leið til þroska. Fólk þorir að segja við vini sína hluti sem það mundi ekki leyfa sér að segja við nokkurn annan. "Vinur er sá sem til vamms segir," segir í Hávamálum........

Læt ég hér staðar numið í útdrætti mínum úr þessari ágætu bók og vil að endingu hvetja ykkur til að verða ykkur út um eintak. Þetta er góð og gagnleg lesning.

laugardagur, desember 24, 2005

Jólaguðspjallið

En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústus keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.

Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi.

Frelsari fæddur

En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá: "Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu."

Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á. Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðarnir sín á milli: "Förum beint til Betlehem að sjá það, sem gjörst hefur og Drottinn hefur kunngjört oss." Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu. Þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um barn þetta. Og allir, sem heyrðu, undruðust það, er hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það. Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það, sem þeir höfðu heyrt og séð, en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.

Lúkas 2:1-20.

Jólasagan með augum barnanna

Þessi jólasaga er ritgerð eftir barn í grunnskóla og er um Jesús frá sjónarhóli barna.

Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni er Jesús. Hann var frá Nazaret í Egyptalandi. Hann fæddist á jólanótt í fjósi, vegna þess að öll hótel voru full. Mamma hans hét María og stjúppabbi hans Jósef. Hann var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var áður gift einhverjum Gabríel, en hann var floginn í burtu. Þegar Jesús var nýfæddur áttu þrír jólaveinar leið fram hjá fjósinu og þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar jólagjafir og reykelsi handa hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar sem þau höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að það átti að telja þau.

Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í þá daga voru börnin ekki skírð fyrr en þau voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda, því þau voru nefnilega alveg færð í kaf. Þegar Jesús varð átta ára gaf pabbi hans honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára kunni hann hana utan að, og það var vel af sér vikið, því í þá daga var Biblían svo stór að það varð að vefja hana upp á kefli. Hann var líka duglegur að læra sálma.

Hann gat galdrað þegar hann var bara smá strákur. Hann var reyndar mesti galdramaður sem uppi hefur verið. Jesús var mjög sérstakur. Hann gekk um og lagði gátur fyrir fólk sem það átti að reyna að leysa, en það tókst sjaldan. Hann gat líka
gengið í gegnum vatn og eld, án þess að það kæmi við hann. Hann gat líka gengið á vatninu. Það var á Genezaretvatni, þar sem hann gekk út að fiskibáti til kaupa fisk. Pabbi minn segir að það hafi verið ís á vatninu, en hann trúir heldur ekki á Guð og Jesú.

Jesús gerði líka mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann var á gangi í Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu sínu úti á miðri götu, Jesús sagði ; Tak sæng þína og gakk. Maðurinn gerði það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar. Svo var það ekkja sem átti son, en ég bara skil ekki hvernig hún gat átt hann fyrst hún var ekkja. Jesús tók
son ekkjunnar í kraftaverkameðferð og við það varð hann mjög vitur, sagði fólk.

Eitt af því merkilegasta sem Jesús gerði var að stjórna borðhaldinu í eyðimörkinni. Það var þegar þessar 5 þúsund manneskjur stóðu aleinar úti í eyðimörkinni án þess að eiga vott né þurrt. Þá gerði Jesús kraftaverk og allir fóru saddir í rúmið.

Jesús gat ekki allaf komið fram í eigin persónu. Stundum var hann dulbúinn sem hirðir og einu sinni kom hann fram undir fölsku nafni.

mánudagur, desember 19, 2005

Elskaðu

"Ef þú ert ekki viss um hvernig þú átt að nálgast þann sem á erfitt vegna kynhneigðar sinnar, opnaðu arminn þinn. Ef viðkomandi þarf á umhyggju þinni að halda, gengur hann/hún inn í opinn faðminn. Að bjóða þeim sem líður illa vegna kynhneigðar sinnar að vera í nánum tengslum er ein stærsta gjöfin sem þú getur gefið viðkomandi."

Chad Tompson, höfundur "Loving Homosexuals as Jesus Would".

þriðjudagur, desember 13, 2005

Gáta

Segjum svo að þú værir í heimsókn á geðsjúkrahúsi og myndir spyrja deildarstjóra hvaða aðferð læknarnir beittu til að ákvarða hvort leggja ætti sjúkling inn eður ei.

"Sko," myndi deildarstjórinn segja, ,"Við fyllum baðkar af vatni. Svo bjóðum við sjúklingnum teskeið, tebolla eða fötu til að tæma baðkarið."

Hvað myndir þú velja?

Fötuna?
Bollann?
Teskeiðina?

Skrollaðu niður þegar þú ert búin að svara.





Þú heldur eflaust að heilbrigð manneskja myndi velja fötuna, þar sem hún er stærri en teskeiðin og tebollinn og auðveldast að tæma baðkarið þannig?

Svar: Heilbrigð manneskja myndi taka tappann úr. Má bjóða þér herbergi með eða án glugga? :)

sunnudagur, desember 11, 2005

Afmæli

Litli fjörkálfurinn minn sem sveittur reif utan af jólapökkunum og sagði "meira" í hvert skipti sem lokið var við að opna hvern pakka, hann er orðinn stóri strákurinn minn og varð 24 ára í dag. Senn fer hann svo í hlutverk föðurins og ég er alveg viss um að hnátan sú á eftir að segja "meira", enda verður henni klárlega spillt af ofdekri afa og ömmu. Og svo er svo skemmtilegt að verðandi móðir hnátunnar verður 25 ára þann 13. des. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram.

Edgar minn og Guðrún mín, til hamingju með afmælin.

Sjálfstraust

"Maður með lélegt sjálfstraust er eins og tannlaus veiðihundur"

Mbl. 11.12.05, Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur

miðvikudagur, desember 07, 2005

Íraksstríðið

Fyrir viku síðan í Tokyo, skammaði Íraski utanríkisráðherrann, Hoshiyar Zebari, fullan sal af fréttamönnum fyrir afneitun þess að Saddam Hussein hefði haft yfir gereyðingarvopnum að ráða.

Zebari sagði: "Margir Írakar dóu vegan notkunar Saddams á gereyðingarvopnum. Við þurfum ekki utanaðkomandi alit þess hvað Saddam gerði eða hafði ekki yfir að ráða. Hann átti, þróaði og notaði gereyðingarvopn. Við fengum að kynnast því í bókstaflegri merkingu. Hann notaði þau á okkur! Hvort hann gróf þau, seldi þau, faldi þau eða fór með þau út úr landinu, vitum við ekki, enda er það ekki það sem skiptir máli." (Heimild: J. Lee Grady, ritstjóri tímaritsins Charisma).

Hvers vegan heyrum við ekki svona raddir eða álit í fréttum? Ég er með því að birta þetta á vefnum mínum ekki að taka afstöðu til Íraksstríðsins, finnst það reyndar ömurlegt og fátt ef nokkuð sem réttlætir stríðsrekstur yfir höfuð. En það þurfa öll sjónarmið að vera uppi á borðum, sérstaklega Íraka sjálfra.

mánudagur, desember 05, 2005

Þakklátur

Sem oftar, hringdi ég í mína heittelskuðu í dag og sem oftar var á tali. Í fyrstu datt mér í hug að vera svolítið pirraður. "Hún er alltaf í símanum!" En í stað þess að pirrast yfir jafn lítilfjörlegu atriði eins og að "alltaf" sé á tali hjá sumum, fór ég að hugsa um hversu heppinn ég er að eiga einhvern svo nákomin sem konan mín er. Því ég veit að alltof margir eiga engan nákomin til að hringja í, hafa jafnvel brotið allar brýr í samskiptum og því engin til að hringja í, því engin vill heyra í manni.

Næst þegar verður á tali hjá konunni minni, ætla ég að þakka Guði fyrir að hafa gefið mér jafn frábæra eiginkonu og hún Sigrún mín er.