Málshættir
Einhvern tíma brennir sig sá sem öll soð vill smakka. Þá gæti reyndar verið gott að hafa í huga annan málshátt sér til varnar, hann er:
Ekki er allt fyrir augunum, sem eta skal. Í lagi er nú samt oft að smakka. Í því sambandi væri gott að hafa í huga að: Enginn verður af einum bita feitur. En vilji maður vera öruggur skal hafa í huga að: Fleira má bíta en feita steik og Gleymt er þá gleypt er.
Sennilega er því gott að hafa í huga að: Allt er best í hófi og Allt er leyfilegt en ekki er allt gagnlegt.
