laugardagur, desember 30, 2006

Maður ársins

Það tíðkast við hver árslok að valinn er maður ársins. Flestir fjölmiðlar standa í þessu og eru yfirleitt nokkrir menn ársins valdir.

Ég er hins vegar ekki í vafa um það hver maður ársins er. Maður ársins hefur staðið við hlið fársjúks maka síns og annast hann rétt eins og þau lofuðu fyrir að ég held 22 árum síðan, í blíðu og stríðu. Þrátt fyrir veikindin sem hafa staðið yfir, með litlum hléum í u.þ.b. 6 ár, hefur maður ársins stundað háskólanám sem hann lýkur í vor, annast 4 "börn", farið fyrir söngstarfinu í kirkjunni sinni, og svo mætti telja áfram. Ég veit að á þessum árum hefur oft verið afar erfitt en eins og maður ársins og maki hennar hafa sagt: Í hvert sinn sem okkur finnst við vera að falla niður í svartnættið, upplifum við að björgunarneti hafi verið komið fyrir í kringum okkur og við erum gripin.

Maður ársins er mágkona mín Anna Júlíana Þórólfsdóttir. Bróðir minn Rúnar Guðnason, greindist með krabbamein í brisi og lifur nærri áramótunum 2000/2001. Sú barátta hefur staðið yfir síðan með litlum hléum og hann aldrei á tímabilinu getað stundað fulla vinnu. Þó ekki sé hann laus við krabbann, þá er líf hans kraftaverk. Og við trúum enn á kraftaverk, að fyrir kraft sinn, náð og miskunn, muni Drottinn Jesús lækna bróður minn algerlega. Í mínum huga eru Júlíana og Rúnar hetjur sem ættu skilið umfram marga aðra að teljast til þeirra sem skara framúr.

þriðjudagur, desember 26, 2006

Jólahugleiðing

Hef sett inn jólahugleiðingu. Hugleiðinguna finnur þú undir liðnum Pistlar, eða ferð beint þangað hér.

sunnudagur, desember 24, 2006

Jólaguðspjallið

En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústus keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. 2Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. 3Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.

Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi.

En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá: "Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu." Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á.

Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðarnir sín á milli: "Förum beint til Betlehem að sjá það, sem gjörst hefur og Drottinn hefur kunngjört oss." Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu. Þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um barn þetta. Og allir, sem heyrðu, undruðust það, er hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það. Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það, sem þeir höfðu heyrt og séð, en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.

Lúkas 2. 1-20

laugardagur, desember 09, 2006

Hvað finnst þér?

Hvet alla lesendur vefsins til þess að heimsækja heimasíðu "Heimili og skóla" og segja álit sitt í könnun sem nefnist "Hvað finnst þér um þjónustu kirkjunnar í grunnskólum er nefnist "Vinaleið"?" Siðmennt, félag siðrænna húmanista, stendur í gegn því að börnum bjóðist sálgæsla á kristilegum forsendum. Taktu þátt og segðu með því hvað þér finnst!