mánudagur, janúar 29, 2007

Áhugaverð prédikun

Útvarpsguðþjónusta sunnudaginn 28. janúar sl. var frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Séra Einar Eyjólfsson, prestur flutti prédikun dagsins. Í prédikuninni gerði hann að umtalsefni meðferð vímuefnaneytenda og trúarbrögð. Í stuttu máli þá var prédikun hans afar faglega og vel sett fram og hvet ég alla sem á annað borð láta sig málið einhverju skipta, að lesa prédikun sr. Einars. Hana finnur þú á tru.is, eða ferð beint þangað hér.

laugardagur, janúar 27, 2007

Flokkslínur

Ég og bróðir minn vorum að spjalla saman og m.a. um pólitískar skoðanir föður okkar sem lést sl. sumar. Pabbi hafði gaman af pólitík og hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og fór þá ekki alltaf eftir flokkslínum hvað skoðanir sínar varðaði.

Bróðir minn orðaði þetta skemmtilega: ,,Pabbi var Framsóknarmaður sem kaus Sjálfstæðisflokkinn en hafði skoðanir Hægri-Krata, enda sagði hann stundum að hann væri viss um að Jesús Kristur hafi verið Jafnaðarmaður."

Skemmtileg blanda!

mánudagur, janúar 22, 2007

Sammála

,,Ef við segjum ekki skilið við það sem greinir okkur að, munum við ekki verða afl sem hefur áhrif."

David Oyedopo, biskup í Laos í Nígeríu, um kristnar kirkjudeildir.

sunnudagur, janúar 14, 2007

Fékk þetta sent.....

1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill: Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr. 550, börn kr. 300.

2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.

3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.

4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það varanlega í höndunum.

5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.

6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.

7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.

8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar, kvenmann, til starfa.

9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar!

11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur..

12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Dauði harðstjóra

Það hefur verið fróðlegt a fylgjast með viðbrögðum hinna ýmsu leiðtoga varðandi aftöku Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Flestir vestrænir leiðtogar, bæði stjórnmála- og trúar hafa lýst því yfir að aftakan hafi verið mistök og hafa lýst sig mótfallna henni. Sem betur fer eymir enn eitthvað af réttlátri siðferðiskennd en siðferðiskennd vesturlandabúa virðist fara hratt hnignandi án þess að ég ætli nánar út í þá sálma.

Þegar ég horfði á frétt af aftökunni, var eins og eitthvað innra með mér hrópaði. Ég fylltist andstyggð og viðbjóði og hver einasta taug hrópaði, þetta er rangt, þetta er rangt. Vissulega var Saddam harðstjóri sem fór illa með þegna sína og hikaði ekki við að myrða og pynta, ef svo bar undir. En réttlætir morð morð? Ef svo væri, værum við þá ekki komin margar aldir aftur í tímann þegar eðlileg viðbrögð voru að vega mann og annan í hefndarskyni? Að mínu mati er ekkert sem réttlætir dauðarefsingar og mig undrar að hinir sömu og vilja banna fóstureyðingar á grunni þess að ekki skuli mann myrða, skuli svo með hinni hendinni leggja blessun sína yfir dauðarefsingar. Slíkt er kallað tvöfalt siðgæði.

Eðlilegt málsmeðferð á máli Saddam hefði verið að yfir honum hefði verið réttað af Alþjóða Stríðsglæpadómstólnum, s.s. eins og alþjóðalög gera ráð fyrir. Þar hefði hann verið látin svara til saka fyrir alla þá glæpi sem hann framdi í forsetatíð sinni, fengið ráttláta málsmeðferð og í framhaldi vonandi refsingu í samræmi við brot sín.

Að lokum vil ég vil taka mér í munn orð Karls Sigurbjörnssonar biskups og segja: "Ég hef megnustu andstyggð og óbeit á dauðarefsingum, eins og þorri Íslendinga. Kirkjuleiðtogar og kirknasamtök um allan heim hafa fordæmt dauðarefsingar sem villimannlegar og ómannúðlegar. Með aftöku sakamannsins er í raun verið að segja að það sé ekkert rúm fyrir iðrun og endurnýjun hugarfars og lífernis."