mánudagur, desember 31, 2007

Gleðlegt nýtt ár!


Við Sigrún óskum þér og fjölskyldu þinni gleðilegs nýs árs! Við óskum þess að nýtt ár verði þér og þínum blessunarríkt og fyllt þeim friði sem Jesús Kristur einn getur gefið.

laugardagur, desember 29, 2007

Maður / menn ársins!


Fyrir ári síðan datt mér í hug að lýsa því yfir hér á síðunni hver, að mínu mati, væri maður ársins. Ég skal játa að valið vafðist ekki fyrir mér nú, ekki frekar en fyrir ári síðan. Í þetta sinn ætla ég að kjósa fleiri en einn og skal játa það strax að valið er náskylt því sem það var í fyrra.

Menn ársins eru hjón. Eiginkonan hefur staðið þétt við hlið eiginmanns síns sem hefur í sex ár barist við krabbamein. Alveg sama á hverju hefur gengið, alltaf hefur hún, og hann, staðið í fæturna þrátt fyrir að oft hafi ekki verið neitt annað að standa á en einæg trú á Jesúm Krist. Þar er reyndar kletturinn sem aldrei bregst og sá sem reiðir sig á Hann mun aldrei verða fyrir vonbrigðum. Í vor útskrifaðist hún úr háskólanámi og byrjaði í nýju og krefjandi starfi nú í haust. Eiginmaðurinn er altaf samur við sig, alveg er sama hvort hann er að byrja í lyfjameðferð, í henni miðri eða fárveikur vegna hinna sterku lyfja eða vegna afleiðinga aðgerðanna sem hann hefur gengist undir, alltaf er hann jákvæður, bjartsýnn og æðrulaus. Eins og ekki hafi verið nægjanegt að berjast við krabbann og afleiðingar hans, ákvað hann að hefja listnám nú í haust og blómstrar nú við myndistarskólann á Akureyri.

Bróðir minn Rúnar Guðnason og mágkona mín, Júlíana Þórólfsdóttir ættu skilið metalíu fyrir æðruleysið og jákvæðnina sem einkennir allt þeirra líf, þrátt fyrir allt. Þau er menn ársins að mínu mati. Mig langar þó að þau deili þessum titli með börnunum sínum, fjölskyldu og frábærum vinum sem hafa í hvert sinn sem skóinn kreppir að, rétt út hjálparhönd og létt þeim róðurinn. Þó ekki sé hallað á neinn, langar mig að nefna einn vin þeirra, hann Theodór Birgisson en þær eru ófáar fjársafnanir sem hann hefur gengist fyrir, vinum sínum til stuðnings, er hann hefur frétt að þröngt sé í búi, sem ekki nokkurn þarf að undra þar sem Rúnar hefur að mestu verið óvinnufær í öll þessi ár. Teddi, ásamt öðrum, deilir því titlinum með þeim og reyndar mætti færa margt gott til bókar, hvað þann góða dreng varðar en það bíður betri tíma.

þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg jól!

sunnudagur, desember 23, 2007

Stressið


Það er alveg sama hversu mjög þú stressar þig á öllu, þ.e. hvort allt verði nú klárt fyrir jólin. Þegar kl. slær 6 (18) á aðfangadag, þá verða gjafirnar undir trénu og ef maturinn verður ekki á borðum, þá er stutt í hann...... Nema kannski hjá þeim sem eru einstæðingar og eiga "engan" að og eða eru heimilislausir og ekkert heimili eiga, hvað þá tré með pökkum undir og mat í pottum og pönnum. Minnumst þeirra í bænum okkar sem misst hafa taktinn og eða hafa aldrei fundið þann takt sem "öllum" finnst sjálfsagður.

Minnumst þannig orða Frelsarans sem við lesum í Matteus 25: ,,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan og gáfum þér að eta eða þyrstan og gáfum þér að drekka? Hvenær sáum vér þig gestkominn og hýstum þig, nakinn og klæddum þig? Og hvenær sáum vér þig sjúkan eða í fangelsi og komum til þín?' Konungurinn mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér."

fimmtudagur, desember 20, 2007

Jæja

Eins og efalítið allir þeim sem slysast til að fara inn á síðuna mína, hafa tekið eftir, þá hefur ekki verið færsla frá því 29. mars sl. (Færslan frá því í júní kom núna en ég sem sagt gerði tilraun í júní sem ekki tóks fyrr en núna) Ástæða þess er að sú að Vodafone breytti "einhverju" hjá sér, þannig að ekki var hægt að uppfæra síðuna. En nú er þetta sem sagt komið í lag og hver veit, ef til vill fer ég að skrifa eitthvað.

Og til ykkar hinna trúföstu sem reglulega hafið komið í heimsókn til að tékka á því hvort "gamli" væri farinn að skrifa eitthvað, vil ég segja. Ég bið ykkur innilega afsökunar á þessum seinagangi að koma þessu í lag.

Lifið heil og passið að missa ekki úr slag í öllu jólastressinu. Jólin snúast jú um það að fagna ljósinu sanna, friðarhöfðingjanum sjálfum, Jesú Kristi!