|
|
||
| Forsíða
|
30. mars 2008 Bjarnargreiði Undanfarna daga höfum við verið með tvo gesti hér á Konsulentvägen. Annar var Jódís frænka sem kom hingað til að passa okkur meðan Einar var á Íslandi að vinna (takk fyrir komuna elsku frænka), hinn er bangsinn Björne. Björne á heima á leikskólanum hans Huga en fær að heimsækja börnin eitt og eitt í einu yfir helgarnar ásamt vinum sínum Snigli og hundinum Hugo. Foreldrarnir skrifa svo í þar til gerða bók um hvað á daga þremenninganna hefur drifið og frásögnin er lesin upp í skólanum í vikunni eftir áður en Björne og félagar halda í heimsókn til næsta barns. Í sjálfu sér finnst mér frábær hugmynd að skapa svona tengingu milli skóla og heimilis. Þetta kerfi var við lýði á Drafnarborg þar sem kisan Patti heimsótti okkur reglulega og ég ætti því að vera orðin gamanlreynd í þessum efnum. Raunin er hins vegar að þetta virðist ætla að vera ansi snúið í þetta sinn! Fyrsta vandamálið sem blasir við mér núna daginn áður en Björne heldur til síns heima er að skrifa þarf textann á sænsku. Nú finnst mér ég orðin alveg ágæt í sænsku, gleypi í mig hverja sænsku glæpasöguna á fætur annarri, rabba við fólk í kaffipásum á kóræfingum og þori orðið alveg að biðja konurnar í föndurbúðinni að ráðleggja mér með gúmmístimpla og fatalit. En að skrifa á sænsku vefst enn fyrir mér. Mikið! Annað vandamálið er að hinir foreldrarnir hafa verið afar metnaðarfullir í dagbókarskrifum sínum fyrir hönd Björne. Í stað þess að skrifuð sé stutt frásögn um viðburði helgarinnar í heild (eins og við vorum vön að gera á Drafnarborg) er skrifuð færsla um hvern dag fyrir sig að lágmarki ein blaðsíða ... oftast tvær! Þriðja vandamálið er að vegna páskafrísins hefur Björne verið hjá okkur í 12 daga! Miðað við það hlýtur að vera gert ráð fyrir um 12-24 síðna færslu frá mér um ævintýri Björne, Snigel og Hugo! Fjórða og hugsanlega stærsta vandamálið er að Hugi er orðinn sex ára. Hann elskar hákarlabækur, Star Wars lego, sjóræningjaskip og að teikna ofbelidsfullar myndir. Bangsar í köflóttum skyrtum að ofan en berir að neðan virðast hins vegar ekki gera neitt fyrir hann. Fyrir vikið hefur nákvæmlega ekkert á daga Björne og félaga drifið síðastliðna 12 daga. Ekkert! Ég sé því fram á að það muni ekki aðeins reyna á sænskukunnáttuna þegar að dagbókarskilum kemur heldur þurfi ég líka að viðra skáldskaparhæfileikana hressilega. Ef ég ætti að halda mig við formið og vera fullkomlega heiðarleg yrði okkar framlag í dagbók bjarnarins nefnilega eitthvað á þessa leið: Dagur 1 hjá Huga: Kæra dagbók! Í dag grófumst við Snigel og Hugo undir risastórri dótahrúgu í herberginu hans Huga. Bless og góða nótt, Björne. Dagur 2 hjá Huga: Kæra dagbók! Höfum ekki enn séð ljósið ...
26. mars 2008 Páskamyndir, gjörið þið svo vel!
22. mars 2008 Og sjá, það varð vor! En samt bara hér á síðunni. Við fengum ekki hvít jól síðast og veðurguðirnir hafa því augljóslega ákveðið að bæta okkur það upp með hvítum páskum! Það liggur snjór yfir öllu nágrenni Konsulentvägen og kaldir vindar blása. Við látum það þó ekkert á okkur fá því inni er hlýtt og notalegt, allt uppfullt af blómum í vösum og pottum og allir eru glaðir og hamingjusamir! Um vorútlit síðunnar þarf svo sem ekki að hafa mörg orð. Ég ákvað að einfalda hlutina aðeins að þessu sinni og halda mig við doppótt þema. Í fyrsta sinn í sögu þessarar síðu hef ég hins vegar breytt leturgerðinni! Þar sem ég er vanföst með meiru var sú ákvörðun ekki tekin án andvökunótta og aukaslaga! Fyrir utan útlitsbreytingarnar hefur tenglunum hér til vinstri fækkað eilítið. Sumar síðurnar voru hreinlega horfnar út í veður og vind, aðrar höfðu ekki verið uppfærðar mánuðum saman og ég sá mér því þann kost vænstan að sleppa tökunum á þeim! Það var þó gert með mikilli eftirsjá og nú þykir mér tenglalistinn ósköp fátæklegur. Ég vona því að annað hvort byrji allt þetta fólk að blogga aftur eða þá að einhverjir af öllum hinum skemmtilegu vinum mínum taki þessa iðju upp í staðinn! Í von um að það hvetji einhverja til dáða er ég búin að setja inn nokkrar myndir úr síðbúinni afmælisveislu Huga: Nú er ég hins vegar farin að þurrka af, mála páskegg og baka súkkulaðiköku! Gleðilega páska!!!
Forsíða Um okkur Mín síða Myndirnar okkar Hafðu samband Gestabókin okkar |
|
|
|