|
Hve stóran rafgeymi á ég að nota við Sólarsellu frá
Rafgeymasölunni?
Þegar velja skal rafgeymi fyrir sólarsellur er mikilvægt að maður
reikni áætlaða notkun. Hér er best að styðjast við þá mestu notkun sem
hugsast getur á árinu og verstu hleðsluskilyrði. Ef þetta er gert þá verður
maður aldrei straumlaus á þeim tímum sem notkun er minni og hleðsluskilyrði
betri. En tökum lítið dæmi hér. Þetta er venjulegt hjólhýsi fyrir 4
persónur.
Reiknið sjálf eyðsluna og orkuþörfina
Hvernig reiknar maður orkunotkun út
Orkunotkun er gefin upp í Watt tímum (Wh). Spenna (U) í voltum (V).
Straumur (I) í amper (A) og orka (P) í wöttum (W).
Ef við vitum straum og spennu þá finnum við orkuna eftirfarandi:
P = I x U
En oftast er orkan gefin upp á perum og þeim hlutum sem við veljum að
nota. Þess vegna getum við lesið orkustærð og margfaldað hana með fjölda
klukkustunda sem við notum hlutinn. Ef við tökum dæmi um leslampann hér í
töflunni þá er formúlan eftirfarandi:
Wh = W x t => 10W x 4t = 40Wh
Dæmi um orkunotkun á einum sólarhring.
|
Fjöldi |
Straumnotandi |
Orka í W |
Notkunartími í klukkustundum |
Orkuþörf í Wh* |
| |
|
|
|
|
|
2 |
Leslampar |
10W |
2 t |
40Wh |
|
1 |
Flúrlampi |
16W |
1 t |
16Wh |
|
2 |
Vegglampi |
10W |
3 t |
60Wh |
|
1 |
Útvarp/græjur |
15W |
2 t |
30Wh |
|
4 |
Innfeld ljós |
10W |
2 t |
80Wh |
|
1 |
Sjónvarp |
40W |
2 t |
80Wh |
|
1 |
Hitablásari |
30W |
2 t |
60Wh |
| |
|
|
|
|
Heildar orkuþörf á
sólarhring
366Wh
Út frá þessari töflu fæ ég notkun upp á ca 366Wh á einum
sólarhring. Nú er rýmd rafgeyma mæld í amper stundum. Til þess að finna út
hve margar amperstundir 366Wh krefjast þá deilum við í töluna með spennunni.
Þetta gefur okkur:
366Wh/12V = 30,5Ah á dag
eða 7x30,5Ah = 214Ah á
viku.
Stærð rafgeymis í Ah
-
Uppgefin stærð
rafgeymis í Ah (amperstundum) er gefið við 20 stunda afhleðslu.
Stærðin er því mæld miðað við þá notkun sem afhleður rafgeyminn á 20
stundum. Ef maður gefur sér 65Ah rafgeymi, er rýmdin gefin upp miðað
við álag sem tekur 3,25A (3,25Ax20 timer = 65Ah). Ef maður tekur meiri
straum frá rafgeyminum þá minnkar rýmd hans mikið. Hve mikið rýmdin
minnkar er bundið við gerð og gæði rafgeymisins. Þess vegna er
mikilvægt að þekkja rýmd rafgeymis síns miðað við þann notkunnarstraum
sem viðkomandi notandi hefur.
-
Það er mikilvægt að
rafgeymirinn sé ekki afhlaðinn allveg. Sem þumalputta regla segir
maður að það ætti ávalt að vera 20% - 30 % eftir á rafgeymi. Það er að
segja að afhleðslan á einungis að vera 70 - 80% af heildarrímd
rafgeymisins.
Þá er komið að vali á rafgeymi fyrir ofan nefnda notkun. Við reiknum með
vikunotkun þar sem lítil sem engin hleðsla hefur verið. Það er að segja
versta tilfelli.
Stærð rafgeymis
= 1.2 x 214Ah = 257Ah.
Þetta er stór rafgeymir
og ef til vill ekki nauðsinlegur. En ef tryggja á að maður hafi ávallt
nægilega orku þá er þetta valið.
En gefum okkur að við
höfum sólartíma á Íslandi eins og veðurstofan reiknar með. Þá fáum við
eftirfarandi upphleðslu í Wh frá Sólarrafhlöðu frá Rafgeymasölunni á viku.
Tafla sýnir orku
hleðslu á viku í Wh.
| Sólarrafhlaða |
Apríl |
Maí |
Júní |
Júlí |
Ágúst |
September |
| 60W |
1000 |
1290 |
1100 |
1160 |
955 |
720 |
| 64W |
1075 |
1375 |
1173 |
1237 |
1018 |
774 |
| 80W |
1347 |
1726 |
1472 |
1555 |
1280 |
971 |
Með því að taka mið að meðaltals upphleðslu rafgeymis miðað við uppgefnar
tölur Veðurstofu Íslands þá getum við minnkað rafgeymastærð okkar verulega.
Tökum dæmi um 60W sólarrafhlöðu. Hér gefum við okkur meðalhleðslu upp á ca
1000 Wh. Eða 83.3 Ah.
Ný stærð
rafgeymis = 257Ah - 83.3 Ah = 173,7 Ah.
Valið yrði því
2 x 90 Ah rafgeymar.
Til þess að taka alla
þætti inn í heildarmyndina þá ættum við að taka tillit vinnugildis
rafgeymisins eða nýtnistuðul hans sem er 90 %. Þá fáum við heyldar rímd á
rafgeymapakka okkar til að vera:
0.9 x 180Ah =
162 Ah
Hér fáum við þá mismun
upp á 173,7Ah - 162Ah = 11,7 Ah. Þar sem við erum þannig sett á Íslandi að
við getum lent í skýjuðu veðri í lengri tíma er best að hafa rafgeyma rímd í
samræmi við veðurfar. Hér myndi því valið falla á tvo 100Ah rafgeyma. Þetta
til að mæta þeim skilyrðum sem við höfum í umhverfi okkar sem ferumst um
náttúru Íslands.
|