
Skýringar trúarbragða
Verk andskotans
Goðsagnir
Heimsmynd okkur
Mannkynið hefur lengst af sögu sinnar leitast við að útskýra öll fyrirbæri í náttúrunni - hagstæð jafnt sem óhagstæð - með skírskotun til guðlegs máttar af einhverju tagi. Eitthvert afl, ofar mönnunum er að verki og notar náttúruna til að sýna mönnunum velvild eða andúð. Andspænis ógnarkröftum hennar verður maðurinn smár og meðvitaður um vanmátt sinn og um alla jörð á öllum tímum - hafa menn verið nokkurn vegin sammála um að eldgos, flóð, jarðskjálftar og önnur óáran séu tiltæki guðlegra afla.
Heimsmynd tuttugustu aldar er í eðli sínu gjörólík þeim hugmyndum sem mannkynið hefur mótað með sér á umliðnum árþúsundum. Hún er afsprengi nýlegrar þróunar í vísindum sem hefur valdið gjörbyltingu á öllum lífsviðhorfum manna. En um aldir og árþúsundir hafa menn í rauninni búið við allt annað raunveruleikaskyn og lífsviðhorf en nútímamanninum eru töm. Goðsagnir, þjóðsögur og trúarbrögð gefa okkur mikilvægar upplýsingar um hugmyndir manna um nátttúruna og hamfarir hennar. Hvar sem samfélag hefur fyrirfundist á jörðinni hefur það reynst hafa á reiðum höndum skýringar á eðli heimsins og tilurð hans. Í þeim skýringum gegna guðlegar verur iðulega lykilhlutverki. Manneskjan er vanmáttugur leiksoppur og ofurseld vilja hins guðlega.
Í okkar menningarheimi þar sem Biblían hefur mótað hugarfarið, hefur sérstök áhersla verið lögð á hamfarir sem guðlegan refsivönd yfir því mannfélagi sem hefur vanrækt eða snúið baki við guði sínum. Með slíkum skýringum hafa menn sætt sig við og skilgreint óskiljanlega og yfirþyrmandi atburði. Soltnir og flengdir Íslendingar fyrri tíðar orðuðu þessa lífsafstöðu þannig: Guð agar þann sem hann elskar.
Heimsmynd kirkjunnar gerði ráð fyrir einum almáttugum guði. Hamfarirnar voru oftar en ekki skýrðar sem refsing hans, áminning, og það fyllilega verðskulduð. Þessi viðhorf koma fram með afar ljósum hætti í Ævisögu og Eldriti Jóns Steingrímssonar þar sem hann lýsir Skatftáreldum á mjög greinargóðan hátt.
Í sumum tilfellum voru hamfarir einnig skýrðar sem verk djöfulsins.