Alla tíð frá því að þéttbýlis- og landbúnaðarsamfélög þróuðust meðal manna hafa þurrkar og hungursneyðir herjað á þá. Ýmsar skilgreiningar eru til yfir þurrka, sem miða flestar við magn úrkomu sem fellur á tímaeiningu. En Ari Toubo Eibrahim landbúnaðarráðherra í Nígeríu hefur sennilegast komið með þá bestu, á blaðamannafundi sem hann hélt árið 1982. Þar í landi höfðu menn lagt til hliðar öllum vestrænum vísindalegum skilgreiningum sem byggðu á mælingum á úrkomumagni og komu í staðinn með skilgreininguna : Menn og dýr fá ekki það vatn sem þau þurfa.
Þurrkar stafa af veðurfarslegum ástæðum og í kjölfar þeirra fylgja gjarnan uppskerubrestir, sérstaklega í löndum sem búa við árstíðarbundnar rigningar. Ef regntíminn byrjar of seint eða of snemma eða þá að hann byrjar alls ekki, er uppskerum stefnt í voða og þar með afkomu fólksins. Má til dæmis nefna að snemma árs 1984, voru í Afríku einni meira en 150 millijónir manna á mörkum hungursneyðar, vegna þurrka síðustu ára.
Sinnuleysi stjórnvalda er oft ærið og þau hafa oft ekki brugðist við þurrkunum og hungursneyðunum fyrr en það er orðið of seint og þau þurfa að fá aðstoð erlendis frá. Þau hafa hugsað sem svo að allt myndi lagast með næstu rigningum. Þessi hugsanaháttur einkennir sérstaklega stjórnvöld þriðja heims ríkja, líkt og í Afríku. Ástæða þessa má að miklu leiti að rekja til þess að stór hluti landsmanna í viðkomandi landi býr í þéttbýli. Í þurrkum eru það þeir sem stunda landbúnað sem verða verst úti, en til þess að missa ekki stuðning þeirra sem búa í þéttbýlina hafa ríkisstjórnirnar ekki viljað gera neitt fyrir landsbyggðarfólkið fyrr en það er orðið of seint. Má til dæmis nefna að á árunum 1975 -1980 hlaut Sahel svæðið í Afríku 7.5 milljarða Bandaríkjadala til aðstoðar. Af þessu fé fór tæplega helmingurinn til landbúnaðramála, en þau þurftu mest á því að halda, en afgangurinn í málefni tengd þéttbýli.
Í þessari stuttu umfjöllun um þurrka hafa einungis verið tekin dæmi frá Afríku, vandinn þar hefur líka hlotið hvað mesta umfjöllun af samsvarandi tilfellum. En þurrkar og hungursneyðir herja á alla jörðina.