Varúðarmerkingar og hjáleiðir við vegaframkvæmd í Danmörku

Að vanda eru hjólreiðabrautir sýnilegar í Danmörku.

Framundan eru vegaframkvæmdir. Settar hafa verið upp greinilegar merkingar því til staðfestingar. Einnig er búið að malbikaðan flága upp á gangstéttina og í framhaldi af því malbika hjáleið áfram inn á íbúðargötu til hægri.

Merkingar eru í réttri stærð og hæð svo þær fari ekki fram hjá neinum.

Á meðan framkvæmdum stendur eru hjáleiðir malbikaðar og í þessu tilfelli skilmerkilega merktar bæði gangandi og hjólandi vegfarendum svo réttur þeirra sé skýr.

Leiðin liggur inn á íbúðargötu framhjá framkvæmdini og tengist aftur inn á stígakerfið handan framkvæmdana með skýrum merkingum.