DV, Fös. 20. apr. 09:33


Vill merktar hjólreiðabrautir


Ísólfur Gylfi Pálmason, alþingismaður Framsóknar á Suðurlandi, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um skipan nefndar
um hönnun og merkingar hjólreiðabrauta. 

Gert er ráð fyrir að Alþingi feli samgönguráðherra að skipa nefnd til að marka stefnu um hönnun og merkingar hjólreiðabrauta í
þéttbýli og dreifbýli. Tekið verði tillit til hjólreiðamanna við hönnun nýrra mannvirkja og stefnt að því að hjólreiðar verði raunhæfur
kostur í samgöngu málum á Íslandi. Nefndin á að skila tillögum sínum fyrir 1. janúar 2002. Tillagan var samþykkt með 50
atkvæðum, 13 þingmenn voru fjarstaddir.


Markmiðið með tillögunni er að vekja athygli á hjólreiðamönnum í umferðinni en einnig að fækka slysum og auka öryggi þeirra.
Hjólreiðar eru vinsæl afþreying á Íslandi, sem og annars staðar, og hefur hjólreiðafólki fjölgað mjög á Íslandi á síðustu áratugum.
Hjólreiðar eru ódýr, skemmtilegur og heilsusamlegur ferðamáti og vinsæl fjölskylduíþrótt. Fjölmörg dæmi eru um að fólk í þéttbýli
noti reiðhjól til þess að ferðast milli áfangastaða. Hjólreiðar eru holl og góð íþróttagrein og er hluti af daglegri líkamsrækt hjá
mörgum. Þær eru einnig afar vinsæll ferðamáti barna og unglinga og er tími til kominn að mótuð verði opinber stefna í þessum
málum. Einnig hefur það mjög færst í vöxt að bæði Íslendingar og útlendir ferðamenn ferðist um landið á reiðhjólum. Þannig er á
sumrum mikil umferð erlendra ferðamanna frá Leifsstöð og einnig frá Seyðisfirði. Aðstaða hjólreiðafólks á Íslandi er afar slæm og
í mörgum tilfellum er hættulegt að ferðast um á reiðhjólum þar sem lítið tillit er tekið til hjólreiðafólks. Hin fjölfarna þjóðleið frá
Hafnarfirði um Garðabæ, Kópavog, Reykjavík og Mosfellsbæ er stórhættuleg hjólreiðafólki, sem og gangandi vegfarendum. Talið
er að um 16.000 reiðhjól hafi verið flutt inn til landsins árlega á síðustu 11 árum sem þýðir um 176.000 reiðhjól auk þeirra sem til
voru áður. Því er talið að um 66% þjóðarinnar eða tveir af hverjum þremur landsmönnum eigi reiðhjól. Í Reykjavík var starfrækt
sérstök hjólreiðanefnd sem skilaði ítarlegum tillögum til borgarráðs árið 1994 auk þess sem gengið var í samtökin ,,Car Free
Cities."