Það er ljóst, bílafólk eru fífl.

Það er svo sólgið í bensín á bíla sína að það getur ekki sleppt því að kaupa bensín einn einasta dag. Það er greinilega engin munur á bensíni og heroíni, bílum og sprautum.

Milli bílafóks gengur þessi aulalegi tölvupóstur

-----------------------------------

Héðan í frá kaupir þú BARA BENSÍN á bensínstöðvum!!!

Olíufélögin stálu af okkur peningum í mörg ár. Það liggur skýrt fyrir í niðurstöðum samkeppnisstofnunar. Þeir viðurkenna það - en segja að málið sé fyrnt.
Þeir vilja ekki borga sektir eða skaðabætur- vegna þess að það er svo langt síðan þeir stálu frá okkur.

Við getum svarað fyrir okkur.
Það þýðir ekkert að hafa bensínlausan dag. Það er bara rugl því þá verslum við bara meira á morgun. Við refsum þeim með buddunni og kaupum BARA BENSÍN! Alveg þangað til þeir hætta að röfla og borga sínar sektir og skammast sín - þá kaupum við BARA BENSÍN. Ekki sígarettur, ekki pylsur, ekki hreinsiefni, leikföng, nammi, mat, hanska, grill né neitt annað, við kaupum allt slíkt annars staðar. Hjá olíufélögunum kaupum við BARA BENSÍN! EKKERT ANNAÐ! Þeir finna fyrir því.

Dreifðu þessu á þína vini - og stattu við það að kaupa BARA BENSÍN. Næst þegar þú freistast til þess að kaupa eitthvað annað á bensínstöð en BARA BENSÍN þá sannar þú orð markaðsstjóra OLÍS sem sagði í samráðinu "Fólk er fífl".

Vilt þú láta hafa þig af fífli? Ef ekki þá kaupir þú BARA BENSÍN.

----------------------------------------

Það eru örugglega 80% landsmanna sem hefur enga þörf fyrir bíla. Það væri því mun áhrifaríkara ef fólk mundi hætta að keyra og slaufa öllum viðskiptum við olíufélögin. Þá mundu allir verða varir við ákaflega jákvæð áhrif í samfélagi og umhverfi. Minni loft- og háfaðamengun. Færri slys og tjón. Betri heilsa á sál og likama með aukinni hreyfingu almennings. Betri fjárhagsleg afkoma heimila, einstaklinga  og almenningsvagna.  Um leið kæmust réttu skylaboðin til Olíufélagana.