mbl.is
 
Forsíða
 
innlent
 
 
Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 17:23
Hentist út úr bílnum
Ökumaður missti stjórn á bíl sínum rétt fyrir utan Grundarfjörð, á leið til Ólafsvíkur, og lenti utan vegar um kl. 8 í morgun. Hentist hann út úr bílnum og segir lögreglan í Stykkishólmi ótrúlegt að ekki skyldi fara verr. Landslagið, þar sem bíllinn fór út af, hafi komið í veg fyrir að maðurinn fengi bílinn á sig. Snerist bíllinn langsum í veltunni og fór fram hjá honum. Stöðvaðist bíllinn um 80 metra frá veginum en maðurinn um 20 metra.
Meira

 
Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 17:21
Sex sinnum öruggara að aka Hvalfjarðargöngin en Hvalfjörðinn
Ný rannsókn þar sem metin er áhættan sem fylgir því að fara um Hvalfjarðargöngin leiðir í ljós að sex sinnum öruggara er að fara göngin en aka fyrir Hvalfjörðinn. Guðni I. Pálsson verkfræðingur gerði rannsóknina og lagði hana fram sem meistaraprófsritgerð við Tækniháskólann í Lundi í sumar. Ritgerðin nefnist Risk Management in Hvalfjord Tunnel og leiðbeinendur voru Håkan Frantzich og Björn Karlsson brunamálastjóri.
Meira

 
Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 17:18
Bensínið 4 krónum ódýrara í Hafnarfirði
Um fjögurra króna verðmunur er á meðalverði bensíns í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum Hafnarfirði og Kópavogi. Meðalverð á 37 bensínstöðvum í Reykjavík er 105,31 króna á 95 oktana bensíni og 47,24 krónur á dísilolíu. Í Kópavogi er meðalverðið á 10 bensínstöðvum 101,14 krónur á 95 oktana bensíni en 44 krónur á dísilolíu. Meðalverð á átta bensínstöðvum er lægst í Hafnarfirði en þar kostar 95 oktana bensín að meðaltali 101,6 krónur og dísilolía er á 43,86 krónur.
Meira

 
Innlent| 17.7.2004 | 16:35
Dráttarvél valt eftir árekstur á Skálholtsvegi
Árekstur dráttarvélar og fólksbifreiðar varð við Reyki, á Skálholtsvegi, í dag, með þeim afleiðingum að dráttarvélin valt. Var ökumaður dráttarvélarinnar fluttur lítillega slasaður með sjúkrabíl á Landsspítala-háskólasjúkrahús, að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Meira

 
Innlent| 17.7.2004 | 16:18
Rúnar og Baldur unnu Skagafjarðarrallið
Það voru þeir bræður Rúnar og Baldur Jónssynir, á Sbuaru Legacy bifreið, sem sigruðu Skagafjarðarrallið, sem fram fór í dag. Bræðurnir óku sérleiðirnar fjórar á 59:39 mínútum samtals, en besti tími þeirra á sérleið var 13:59 mínútur. Í öðru sæti urðu Hilmar B. Þráinsson og Ægir Arnarson á Toyota Corolla 1600 á tímanum 1,09:34 og í þriðja sæti urðu Daníel Sigurðarson og Sunneva L. Ólafsdóttir á tímanum 1,09:51.


 
Innlent| 17.7.2004 | 15:40
Slys varð á mótorkrossbrautinni við Selfoss í dag
Slys varð á mótorkrossbrautinni við Selfoss í dag, þegar 16 ára pilti hlekktist á við æfingar á bifhjóli sínu. Var hann fluttur á Heilsugæslustöðina á Selfossi og síðan á slysadeild Landsspítala-háskólasjúkrahúss í Reykjavík. Er pilturinn handleggsbrotinn og mun væntanlega hafa hlotið fleiri minniháttar áverka, að sögn lögreglunnar á Selfossi.


 
Innlent| 17.7.2004 | 15:34
Þrír bílar í árekstri við Þrengslavegamót
Þriggja bíla árekstur varð í Svínahrauni, við Þrengslavegamót nú eftir hádegið, með þeim afleiðingum að einn bílanna fór út af og valt. Var kona úr einum bílanna flutt slösuð með sjúkrabíl á Landsspítala-háskólasjúkrahús, en lögreglan á Selfossi gat ekki gefið upplýsingar um meiðsl konunnar að svo stöddu.
Meira

 
Innlent| 17.7.2004 | 12:22
Tekinn á 130 km hraða á Álftanesvegi
Ökumaður á átjánda ári, var stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði í nótt þar sem hann tók fram úr lögreglubíl á 130 km hraða á Álftanesvegi, en hámarkshraði þar er 70 km á klukkustund. Má ökumaðurinn búast við 50.000 króna sekt og mánaðarsviptingu ökuleyfis, að sögn lögreglu.


 
Innlent| 17.7.2004 | 11:25
Með smyglvarning í bílnum
Lögreglan í Hafnarfirði var við almennt eftirlit á fimmtudagskvöld og stöðvaði ferð bíls. Við skoðun kom í ljós að ökumaðurinn var með talsvert magn af smygluðum sígarettum í bílnum. Lögregla segir að ökumaðurinn sé útlendingur, sem dvelur hér á landi við vinnu. Hann var handtekinn og tekinn til yfirheyrslu á föstudagsmorgun en síðan sleppt. Málið er enn í rannsókn.


 
Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 05:30
Útlit fyrir minnst 18 prósenta hækkun á lyfjakostnaði Tryggingastofnunar
Heilbrigðisráðuneytið og lyfjahópur Félags íslenskra stórkaupmanna freista þess að ná samkomulagi um frekari lækkanir á lyfjaverði, en allt útlit er fyrir að hækkun á lyfjakostnaði Tryggingastofnunar milli áranna 2003 og 2004 verði að minnsta kosti átján prósent miðað við núverandi forsendur en ekki níu prósent eins og ráð var fyrir gert.
Meira

 
 Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 05:30
Handtekinn með 24 bíllykla á sér
Tuttugu og fjórir bíllyklar að jafnmörgum bílum fundust á manni sem lögreglan í Reykjavík handtók í gær vegna gruns um þjófnað. Handtaka mannsins, sem hefur nokkrum sinnum áður komið við sögu lögreglu, tengdist öðru máli en lögreglan fann lyklana við leit á manninum.
Meira

 
Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 05:30
Smíði í stöðvarhúshvelfingu að hefjast við Kárahnjúka
Byggingaframkvæmdir í stöðvarhúshvelfingu Kárahnjúkavirkjunar hefjast eftir helgina. Það er Fosskraft sem sér um þennan hluta verksins, en framkvæmdir á vegum fyrirtækisins hafa gengið mjög vel og eru talsvert langt á undan áætlun. Fyrirtækið er búið að bora um 75% af öllum jarðgöngum og mun klára borun í haust.
Meira

 
Innlent| Morgunblaðið | 17.7.2004 | 05:30
Hvalfjarðargöng lokuðust: Kunni ekki að skipta um gír
Bílstjóri steypubíls kunni ekki að skipta niður í fyrsta gír, þegar hann var að fara upp úr Hvalfjarðargöngunum sunnan megin í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bíllinn stöðvaðist ofarlega í göngunum. Myndaðist löng biðröð fyrir aftan bílinn sem sat fastur við efstu beygju.
Meira

 
Innlent | 16.7.2004 | 20:35
Hvalfjarðargöngum lokað í hálftíma vegna bilaðs bíls

 
Innlent | 16.7.2004 | 20:25
Minniháttar áverkar eftir útafakstur við Nesjavelli

 
Innlent | 16.7.2004 | 20:18
Þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi

 
Innlent | Morgunblaðið | 16.7.2004 | 20:07
Á batavegi eftir slys í Ártúnsbrekku

 
Innlent | 16.7.2004 | 20:03
Ók fram á 14 hesta á Hólavegi

 
Innlent | 16.7.2004 | 18:05
Bíll hafnaði utan Nesjavallarvegar

 
Innlent | 16.7.2004 | 17:20
Lést í Bíldudal

 
Innlent | 16.7.2004 | 16:50
Tíu ára drengur varð fyrir bíl

 
Innlent | 16.7.2004 | 14:05
Vegaframkvæmdir taldar fæla ferðamenn frá Kelduhverfi

 
Innlent | 16.7.2004 | 11:34
Hvolfdi í lendingu í Þjórsárdal

 
Innlent | 16.7.2004 | 10:02
Heimdallur vill að Alþingi samþykki skattalækkanir nú

 
Innlent | 16.7.2004 | 09:47
Ungir ökumenn á Reykjanesi

 
Innlent | 16.7.2004 | 07:04
Lokið við að steypa nýja brú yfir Brúará

 
Innlent | 16.7.2004 | 06:58
Hljóp frá árekstri í Kópavogi en var hlaupinn uppi

 
Innlent | 16.7.2004 | 06:33
Pakka með fíkniefnum kastað út um bílglugga við Blönduós

 
Innlent | Morgunblaðið | 16.7.2004 | 05:30
Banaslys á Bíldudal

 
Innlent | 15.7.2004 | 19:11
Bíll hafnaði utan vegar

 
Innlent | 15.7.2004 | 19:06
Harður þriggja bíla árekstur í Langadal

 
Innlent | 15.7.2004 | 17:54
Óskráðum og ótryggðum jeppa ekið á fólksbíl

 
Innlent | Morgunblaðið | 15.7.2004 | 17:28
Með höfuð- og brjóstholsáverka eftir 5,5 m fall

 
Innlent | 15.7.2004 | 17:24
Óbreytt líðan eftir umferðarslys í Ártúnsbrekku

 
Innlent | 15.7.2004 | 17:20
Níu ára drengur meðvitundarlaus og í öndunarvél

 
Innlent | 15.7.2004 | 15:37
Allir ljósabekkir verða fjarlægðir af sundstöðum Reykjavíkur

 
Innlent | 15.7.2004 | 15:29
Lítilli flugvél hlekktist á í flugtaki

 
Innlent | 15.7.2004 | 11:59
Kona dæmd fyrir að slá lögreglumenn hnefahöggum

 
Innlent | 15.7.2004 | 10:24
Tvöföld Reykjanesbraut opnuð eftir 2 vikur

 
Innlent | 15.7.2004 | 06:58
Útafakstur leiðir til innbrotskæru

 
Innlent | 15.7.2004 | 06:51
Bensínlykt upp úr niðurföllum í Kópavogi

 
Innlent | 15.7.2004 | 06:17
Mikið annríki í sjúkraflugi frá Akureyri

 
Innlent | 15.7.2004 | 06:16
Slasaður níu ára drengur sóttur til Grænlands

 
Innlent | Morgunblaðið | 15.7.2004 | 05:30
Tilkynntu flutning en voru skráðir látnir

 
Innlent | Morgunblaðið | 15.7.2004 | 05:30
Eitt innbrot á dag

 
Innlent | Morgunblaðið | 15.7.2004 | 05:30
Löggulaust á Vopnafirði