RUV
 

Reiðhjólabremsur eyðilagðar

Klippt var á hand- og fótbremsur fjölmargra reiðhjóla við Melaskólann í Reykjavík í gær. Ekki er vitað hver var að verki. Nokkrir foreldrar barna í skólanum sem skólastjórnendur hafi rætt við fullyrða að minnstu hafi munað að börn þeirra hafi lent alvarlegu slysi vegna þessa. Í orðsendingu sem foreldrum hefur verið send er þeim ráðlagt að láta börnin ekki koma á hjólum í skólann.

Meira á LHM Bloginu

 


Íslenski fjallahjólaklúbburinn sendir tvö erindi til skólastjórnar, foreldraráðs, og foreldrafélags Melaskóla ásamt fulltrúa þjónustumiðstöða Vesturbæjar, Fella- og Hlíðahverfa, Lýðheilsustöðvar, Höfuðborgarstofu og hverfisfulltrúa lögreglu.

Hið fyrra:
Vegna þessa atviks við Melaskóla ætlar Íslenski fjallahjólaklúbburinn að hafa opið hús að Brekkustíg 2, sunnudaginn 9. september og bjóða þeim skólabörnum/forráðamönnum sem lentu í þessu skemmdarverki að skipta um barka með aðstoð fagmanna.
Ásamt nýjum bremsu- og gírvírum verður kakó, kaffi, kleinur og góða skapið í boði í klúbbhúsinu. Húsið opnar klukkan 12:00

Hið síðara:
Í ljósi fréttaflutnings miðvikudags 5. september síðastliðinn um að reiðhjólabremsur hafi verið eyðilagðar vill Íslenski fjallahjólaklúbburinn benda á að það að eyðileggja bremsur á hjólum er nokkuð alvarlegra heldur en að vinna skemmdir á bremsum bíla! Bílar eru hannaðir til að verja ökumenn þeirra og farþega ef árekstur verður en á reiðhjólum er því ekki við komið, ... nema að hafa góðar bremsur sem á reynir þegar virkilega á þarf að halda!

Sorglegt þykir okkur að aðal áhersla fjölmiðla um tilvikin hafi verið að hamra á orðsendingu þeirri er send var foreldrum um að ráðleggja þeim að hleypa ekki börnum sínum á hjólum í skólann frekar en að benda á alvarleika málsins að af ásetningi hafi verið eyðilagðar bremsur á fararækjum. Enn frekar þykir okkur eftirtektarvert í ljósi hve alvarlegt atvik þetta er að þegar þessi texti er skrifaður hefur atvikið ekki talist nægilega markvert af hálfu lögreglunnar til að eyða einu orði á á fréttavef sínum.

Jafnframt hefur íslenska fjallahjólaklúbbnum borist erindi frá verslunarstjóra Fjallahjólabúðarinnar GÁP en þeir hafi að undanförnu fengið hjól inn til viðgerða þar sem losað hefur verið um "quick-release" öxla sem heldur hjólunum á reiðhjólunum. Burt séð frá því hvort hjólin séu nánast ónýt eftir þess háttar skemmdarverk, að þá er það hrein mildi að eigendur hafi sloppið án teljandi meiðsla. Nýjasta dæmið kom inn til þeirra í morgun. Því er hægt að draga þá ályktun að þetta er ekki bundið við Melaskóla heldur er um farald að ræða sem mun fyrr en síðar enda með alvarlegu slysi/slysum ef ekki er reynt að hafa vakandi augu og eyru og hafa hendur í hári þess(ara) aðila sem er greinilega alveg sama um líf og limi barna og fullorðinna!

Stjórn Íslenska fjallahjólaklúbbsins harmar viðbrögð skólastjórnar Melaskóla um að hvetja foreldra til að banna börnum sínum að fara á reiðhjóli í skólann eftir að klippt hafi verið á bremsur reiðhjóla. Ráð hefði verið að kenna krökkum að athuga vel hjólin sín áður en þau hjóla af stað, (á líka og þegar kennt er til bílprófs að athuga dekk, sæti, spegla og setja á öryggisbelti áður en ekið er af stað). Vandamálið er ekki að börnin skuli koma á reiðhjólum í skólann heldur aðstöðuleysi við geymslu á reiðhjólum við skólann. Skólastjórn hefði þess í stað átt að fara fram á að byggð verði hjólageymsla við skólann með eftirlitsmyndavélum fremur en að bæta gráu ofan á svart með því að verða við áætluðum vilja skemmdarvargs(a) með því að draga úr notkun reiðhjóla. Best hefði verið að fullvissa foreldra um að markvisst yrði komið upp öruggari hjólreiðastæðum og verja þar með eignir og heilsu nemenda.
Sú hreyfing sem skólabörn fá af göngu og hjólreiðum er þeim afar mikilvæg. Ennfremur að skólabörn verði hvött til þess að fara á reiðhjólum í skólann og þeim kenndar viðeigandi umferðareglur. Það er heldur hart í ári þegar stuðlað er að því að letja börn til hreyfinga og auka þar með bílaumferð og hættu við skóla sem ekki er við bætandi.

Biðjum að lokum alla vel að lifa með ósk um að halda krökkunum hraustum og ánægðum á sínum einkahjólum með athyglisgáfuna í lagi. Sjáumst sem flest hress á sunnudaginn 9. september.

Stjórn Íslenska fjallahjólaklúbbsins
Brekkustíg 2
101 Reykjavík
www.mmedia.is/ifhk