Endurvinnsla Náttúru
Gefðu gömlum hlutum líf. Ekki henda heldur seldu og keyptu notað. Sendu auglýsingu til Náttúru
![]()
29. des. 2000. Vill einhver kaupa gæðahjól á lágu verði eða 70þús. ? Þetta er Cannondale M 2000 medium vel meðfarinn XT búnaður LX nýjar V bremsur og nýjir griparmar nýr Carbon fiber hnakkur nýr Softride Pro demparastammi Mavic gjarðir og ný cruserdekk. Þegar talað er um nýtt þá hefur það aldrey verið notað, ekki einusinni! Grindin er póleruð og hjólið er ósaman sett en skemmtilegt fyrir einhvern sem langar að dunda sér viða að setja það saman í vetur.
Upplýsingar hjá Kára Jarli Kristjánsyni hs. 860 5406 vs. 563 3287 og karik@ejs.is
![]()
5. mai 2000 Þarf að losa geymslu. Til sölu norsk heilsárs tjöld frá Helsport annað 2 tveggja manna braggatjald með góðu fortjaldi. SELT Hitt tjaldið er rúmgot 3 manna "kúlu- eða tígultjald" svipað því sem Haraldur notaði á norðurpólnum SELT. Hægt að komast inn í það á tveimur söðum. Við báða innganga eru rúmgóð fortjöld. Bæði tjöldin eru með snjóskarir og rúmar hælafestingar svo hægt er að nota skíði til að tjóðra niður tjöldin. Tjöldin seljast á 5000kr. hver fyrir sig og fylgja svampdínur báðum tjöldum með í kaupbæti.
Til sölu á sama stað tveir Ajungilak svefnpokar. Annar ónotaður (aðeins 1 ferð) Kompakt Lite Twin, 1kg. 195cm með Quallofill 7 einangrun á 3000 kr. Hin svefnpokinn er Ajungilak Atlantica 195cm með Quallofill einangrun Er hann eitthvað meira notaður og selst á 1000 kr í "stekkpoka".
Upplýsingar hjá Magnús Bergs. s. 552 5706 mberg@islandia.is .
![]()
3. apríl 2000 Til sölu rauðar Ortlieb fram- og afturtöskur Bike-Packer light seljast á 12 þús. kr. Upplýsingar hjá Ásgeir s. 896 9380
![]()
3. mai 2000 Til sölu ! XL Cannondale F2000 ´98
CAD3
Ónotað:
2x Mavic 121 Ceramic 36 gata gjarðir. SELDAR
Hugi 36 gata fram og aftur nöf.
XTR Crankset 180mm 24x34x46.
XTR Bottom Bracket.
XTR Rapidfire 8 gíra bremsu og skiptasett.
XTR 8 gíra kassetta. SELD
TS-2 Park Truing Stand.
Notað:
Ortlieb töskur 6 stk.
(4 st. + 2 pokar) SELDAR
B.O.B. trailer. SELDUR
Grodda fram og aftur böglaberar. SELDIR
Verkfæri, gjarðir, dekk o.fl.
Upplýsingar hjá Gretti í síma 8682203 geha@binet.is
(fyrir 15. maí)
![]()
5. apríl 2000 Til sölu vönduð reiðhjólaálgrind frá Alfton, gersamlega alsbert, ónotað og enn í umbúðum . Rafhúðað Easton 7005 ál og útskiptanleg gírhengja silfrað á litinn. Stærð 17,5 tomma (c.t.top 48cm /c.t.c 44cm). Slálengd 22,2 tommur (horizonal 56,5 / actual 55,5cm) Keðjugaffall 16,75 tomma (42,5 cm). Stýrislega 11/8. Sveifarlega BSA 68cm og afturöxull 135mm. Þessi vandaða grind selst á aðeins 20þús. kr. gefur kost á að kaupandi geti smíða sér afskaplega vandaðan reiðskjóta. Nánari upplýsingar hjá Helga 561 1383