Undirbúningur fyrir ferðalög á reiðhjóli.

Fátt er skemmtilegra en að eiga stefnumót við móður náttúru á reiðhjóli, hljóðlaust og án þess að menga sitt nánasta umhverfi. Því miður eru það allt of fáir sem hafa treyst sér til að nota reiðhjólið til ferðalaga. Getur það stafað af vanþekkingu og vanmáttarkennd gagnvart náttúrunni t.d. vegna mikillar víðáttu og hræðslu við að takast á við hana í allri sinni mynd? Eftir að fólk hefur vanið sig á nota hraðskreiðan einkabílinn breytist fjarlægðarskynið, auk þess vill brenna við að fólk hættir að sjá smáatriðin í náttúrunni og hreinlega gleymir því að nokkuð slíkt sé til. Því vill hæg yfirferð á reiðhjóli byggja upp óþolinmæði sem erfitt getur verið að losna við nema með því að taka sér tak. Allir þeir sem hafa farið inn á líkamsræktarstöðvar vita vel hversu erfitt það er að takast á við æfingarnar í fyrsta sinn, en eftir nokkra daga verður sú hreyfing nauðsynleg og hreinlega að fíkn. Lykillinn er sá sami og þegar byggja þarf upp jákvæðni í daglegu lífi þar sem taka þarf erfiðleikum opnum örmum. Takast á við hvert einstakt tilfelli og leysa það, og viti menn, eftir skamman tíma opnast dyr að stórkostlegu heimili sem náttúran vissulega er. Þó jákvæður hugur beri mann langa leið er ekki verra að kunna að búa sig rétt. Ef fólk ætlar sér að leggja í langferð á reiðhjóli er gott að vera búin/n að gefa sér góðan tíma til að venjast hjólinu með því að fara í stuttar og langar helgarferðir. Best er að nota hjólið daglega, minnst í einn mánuð áður en lagt er í-ann. Það eflir líkamann og hvetur fólk til að njóta náttúrunnar á annan og nánari hátt. Hér verða ýmsir hlutir taldir upp sem mörgum þykir flókið. Það getur því verið tilvalið að líta við á vikulega fundi hjá Íslenska fjallahjólaklúbbnum (ÍFHK) www.this.is/hjol og kynna sér málin. Hefur klúbburinn reglulega haldið námskeið fyrir byrjendur í viðhaldi reiðhjóla og undirbúningi ferðalaga. Er öllum velkomið að taka þátt í þeim sem og ferðum klúbbsins. Það má líka biðja um námskeið ef með þarf. 

Er hjólið í lagi?

 Það er ekki nóg að líkaminn sé í lagi ef hjólið er að niðurlotum komið. Öll hjól þarf að yfirfara, jafnvel þótt þau séu ný. Reiðhjól eru hins vegar ekki flókin tæki. Á óvönduðum og eldri hjólum eru skrúfur og rær oft lausar eða ofhertar og hreyfanlegir hlutir illa smurðir. Búnaður þeirra eru iðulega úr málmum sem ryðga, slitna eða forskrúfast. Lyklar passa illa á skrúfur og rær sem veldur því að allt viðhald verður bæði erfiðara og tímafrekara. Á dýrari og nýrri hjólum þarf oftast ekki meira en 1 til 3 sexkanta til að stilla allt hjólið.

            Flestir ættu að geta athugað eftirtalin atriði sjálfir: Eru sporskiptar (gírar) rétt stilltir og smurðir? Athuga vel endastoppskrúfur. Liggja bremsupúðar rétt að gjörðum hjólsins? Eru bremsu- og gíravírar óslitnir og óryðgaðir? Er slag í hjólnöfum eða eru þau ofhert? Sömu atriði þarf að athuga í sveifarlegum og stýrislegum. Eru teinar slakir eða ofhertir? Eru brestir, slit eða kast í gjarðahringjunum? Er keðjan slitin? Ef skipta þarf um keðju þarf einnig oft að skipta um afturdrifkrans. Sú er raunin, ef nýja keðjan hoppar á tannhjólunum við átak. Eru gjarðaöxlar skakkir? Ef svo er, þarf nær undantekningalaust að rétta gaffalenda. Það er hægt að fá athugað í klúbbhúsi ÍFHK. Bognir öxlar og gaffalendar eru ástæður þess að öxlar brotna. Því er mjög mikilvægt að þeir séu í lagi. Athugið að verkstæði eru yfirhlaðin verkefnum á vorin og sumrin. Því er best að athuga sem flest fyrrnefnd atriði heima hjá sér, enda má mikið læra af því. Láttu aðeins líta á þau atriði sem þú telur þig ekki geta athugað. Þegar hjólið er tilbúið, er skynsamlegt að fara til reynslu í stutta helgarferð með allan búnað.

 Ferðabúnaður

Bögglaberar verða að vera sterkir, sérstaklega ef ekki er hjólað á malbiki. Þeir sem eru að fara í sína fyrstu ferð eru oft ofhlaðnir farangri og fylgir því sú hætta að eitthvað láti undan. Athuga þarf allar suður þegar bögglaberar eru keyptir. Hafa ber í huga, að því fleiri stög sem halda grindinni saman, því sterkari verður bögglaberinn. Best er að hafa hann úr ál- eða stálpípum frekar en úr teinum. Athuga skal sérstaklega vel suður og frágang á stöðum sem mikið mæðir á, t.d. á festingunni, þar sem bögglaberinn er festur við gaffalenda hjólsins. Ef bögglaberinn er úr áli er gott að styrkja suðurnar betur. Hægt er að láta gera það hjá fyrirtæki í Kópavogi sem heitir Áltækni. Athugið að stálbögglaberar þola oft meira álag en álbögglaberar. Fyrir þá sem gera miklar kröfur, eru bestu bögglaberarnir gerðir úr léttum “cromolid” stálpípum. Má þar m.a. nefna bögglabera frá Bruce Gordon Cycles og Tubus en þeir eru því miður ófáanlegir hér á landi. Íslenskir fram- og afturbögglabera úr stálpípum hafa nú fengist í flestum hjólreiðaverslunum um nokkurra ára skeið. Hafa þeir hentað mjög vel við íslenskar aðstæður en því miður ekki passað vel á öll hjól. Ekki er til mikið úrval af böglaberum fyrir framdempara. Er það vandamál ekki aðeins bundið við Ísland, menn hafa því þurft að leysa þann vanda með smá útsjónasemi. Þó ber að nefna þýska framböglabera frá Faiv, riese&muller, Tubus og RST frá Tævan. Sumir þessara böglabera eru fremur flóknir sem ekki mikil reynsla er komin á en ákaflega spennandi. Að lokum má nefna ameríska böglabera frá Oldmanmountain þeir hafa reynst nokkuð vel á fulldempuð hjól þó þér séu úr áli.

            Skrúfurnar sem festa bögglaberann við hjólið og allur þungi hvílir á þurfa að vera úr sérstaklega hertu stáli. Þær er hægt að fá í versluninni G J Fossberg (svartar á litinn). Passið að setja lásró með hverri skrúfu svo að hún losni ekki. Á flestum hjólum er ekki unnt að setja ró á skrúfuna, sem er drifmegin að aftan, vegna þess að keðjan rekst í hana. Þar verður að setja gengjulím, (t.d. Loc Tite 222), sem líka fæst hjá G. J. Fossberg. Mikilvægt er að sem flestar skrúfur séu fyrir sömu lyklastærð svo að ekki þurfi að hafa marga lykla með í ferðalög. Sexkantar eru betri en skiptilyklar.

Farangursvagnar eins og Bob Yak, Aevon og Extrawheel eru valkostir í stað bögglabera og hliðartaskna. Vagnar eru því besta og oft eina lausnin fyrir þá sem ferðast á reiðhjólum með fram- og aftur dempurum. Þeir þykja líka góðir með tvímennings- og dogghjólum til að færa þyngdina af hjólinu. Aftur á móti er erfiðara að ráða við hjólið í lausamöl og hliðarvindi.

Töskur

Góðar töskur skipta miklu máli. Varast ber þunnar nælontöskur. Nú er töskuúrvalið orðið nokkuð gott hér á landi. Bestu töskurnar eru gerðar úr 100% vatnsheldum PVC efnum. Töskurnar þurfa að vera með hörðu baki svo að þær fari ekki í teinana. Athuga þarf hvort vel sé gengið frá saumum, festingum og krókum að utan sem innan. Rétt er að athuga, hvort töskurnar passa vel á bögglaberann með því að máta þær á hjólið þegar þær eru keyptar. Þá má ekkert los vera á töskunum og ekki mega hælarnir rekast í þær. Ekki mega þær vera reyrðar þannig niður að reyni á festingarnar eða erfitt verði að losa þær af bögglaberanum. Hægt er að fá mjög góðar vatnsheldar töskur frá Ortlieb sem framleiðir eingöngu töskur úr vatnsheldu PVC. Efnið er alveg vatnsheld og allir saumar soðnir. Hafa þessar töskur reynst einkar vel hér á landi auk þess sem lítið mál er að þrífa þær. Þessum töskum fylgir þó sá galli að efnið “andar” ekki og ef vatn á annað borð kemst í þær getur allur farangur farið á flot.

            Krókarnir á töskunum þurfa að vera sterkir, stillanlegir og með læsingum sem festa töskurnar tryggilega við bögglaberana. Ekki er verra ef hægt er að fjölga krókunum. Það er góður kostur ef menn eru með álbögglabera því að álagsdreifingin verður jafnari. Í verslunum hefur verið hægt að fá ódýrar Ortlieb eftirlíkingar frá framleiðendum eins og Vaude, Scott eða Connix. Hafa þær reynst nokkuð vel nema hvað krókarnir eru misjafnlega góðir eftir töskugerðum. Þó að til séu vatnsheldar töskur er samt sem áður gott ráð að pakka öllu í plastpoka. Plastpokar varna því að farangur eyðileggist vegna hristings. Aldrei ætti að bera farangur á bakinu eða á annan hátt utan á sér, nema viðkvæman búnað s.s. myndavél. Það er líka slæmt að hlaða öllum farangri aftan á hjólið því þá er hætta á að missa stjórn á hjólinu í lausamöl og einnig þegar klífa á brattar brekkur. Þumalputtaregla er að hafa u.þ.b. sömu þyngd að framan og að aftan. Láttu þér svo ekki bregða þegar þú stígur á hjólið eftir að farangur er kominn á það. Þú venst tilfinningunni eftir tvo daga eða svo. Ef þú ert á stífu reiðhjóli þá er líklegt að allur farangurinn mýki upp hjólið svo að í sumum tilfellum getur verið þægilegt að hjóla á því fullhlöðnu.

Kæðnaður

Réttur klæðnaður hjólreiðamanna er mikilvægur. Það er ekki sjálfgefið að hjólreiðaföt framleidd á Ítalíu séu heppileg fyrir íslenskar aðstæður. Hjólreiðaverslanir hér á landi selja oftast nær þokkalegan fatnað. Útilífsverslanir hafa hins vegar besta úrvalið af undirfatnaði. Nauðsynlegt er að hafa með sér ullarnærföt á ferðalögum og klæðast alltaf ullarsokkum. Ef klæðast á “Lycra” hjólreiðabuxum með sætisbót er best að hafa þær næst sér og sleppa nærbuxum. Forðast skal bómullarfatnað vegna þess að hann þornar seint og getur því valdið ofkælingu. Notið í stað þess t.d. fatnað úr “Polarsystem”, “fleece” “lycra”, “Transtex”, “Tryflo” og ull. Bestu undirfötinn svo og reyndar öll föt til hjólreiða verða að þorna hratt og fljótt. Þannig má segja að bestu fötinn sé þau sem þú getur farið í svo gott sem þurr beint eftir þvott og vindingu.  Fötin þurfa að anda vel en vera þó vind- og vatnsþétt eins og “Gore-Tex” og önnur skyld efni. Rétt hönnun fatnaðarins skiptir miklu máli. Vel þarf að lofta í gegnum yfirhafnir svo að líkaminn fái kælingu og sviti leiti út. Yfirleitt nægir að fatnaðurinn sé aðeins vind- og vatnsheldur að framan. Gott er að hafa húfu og vettlinga og hjálm eiga menn alltaf að bera.

            Hjólreiðaskór fást í flestum fyrrgreindum verslunum. Þó geta léttir gönguskór með stífum sóla gert meira gagn en sérstakir hjólreiðaskór því oft er mikið gengið þótt fólk ferðist á hjólum. Kostir hjólreiðaskóa eru að þeir eru með stífum sóla, hafa möguleika á festingum fyrir smellupetala, hafa rauf fyrir hásinina, eru mjög léttir og anda oft betur en gönguskór. Kostir gönguskóa eru hins vegar að þeir eru hlýrri, sumir vatnsþéttir og endast oft betur. Óþarfi er að hafa meðferðis stígvél því að þau eru þung og fyrirferðamikil. Í þeirra stað nægja legghlífar, sem skýla fótleggjum og skóm að framanverðu. Þær hafa fengist hér í hjólreiðaverslunum þó úrvalið geti varla talist mikið. Hlífarnar má einnig sníða úr þunnu PVC efni sem fæst í Seglagerðinni Ægi. Þær þurfa að ná undir og yfir tærnar og þaðan upp legginn, því sem næst að hnjám. Hlífarnar eru festar um legginn efst og rétt við hásinina með frönskum rennilás og teygjanlegum böndum. Legghlífin nægir fullkomlega flesta rigningadaga. Vatnsheldar skóhlífar fást í sumum verslunum. Hægt er að nota seglbretta- eða kayakskó úr “Neopren”-efni til að vaða yfir ár án þess að finna fyrir kulda og grýttum botni. Gamlir strigaskór gera svipað gagn.

Viðhald 

Þó að reiðhjól séu ekki margbrotin hafa þau þó þann galla að geta bilað. Samt er oft hægt að komast býsna langt án þess að þurfa að gera við, þá sérstaklega á seinni árum þar sem gæði reiðhjóla og búnaðar hefur mikið batnað. Ef hjólið er gott er minna um viðgerðir og allt viðhald auðveldara. Í raun má ganga svo frá hnútunum að nánast bili aldrei neitt. Ef hlutirnir eru athugaðir daglega eða um leið og eitthvað óeðlilegt finnst, þarf ekkert óvænt að koma upp á. Það sem helst bilar á hjólreiðaferðalögum er eftirfarandi: Stýrislegur losna. Dekk rifna og slöngur springa Bögglaberar brotna og teinar slitna, einnig keðjur og gír- og bremsubarkar. Oft má koma í veg fyrir svona bilanir með því að athuga hjólið daglega. Það finnst bæði og heyrist þegar legur losna og þá þarf að stilla þær strax ! Mjög algengt er að bremsupúði nuddist við dekkið og það rifni. 

            Hjólið ekki yfir djúpar ár, heldur berið hjólið yfir. Ef ferðast á um torfæra slóða er nauðsynlegt að vera á breiðum gjörðum sem eru yfir 25mm breiðar að utanmáli. Breiðar gjarðir minnka líkur á því að gjarðabrúnir skeri á strigann í hliðum dekkjana. Keramik húð á gjarðahringjum eins og frá Mavic eykur endingu gjarða um nokkur ára, auk þess sem bremsupúðar slitna margfallt hægar. Gott er að vera með 2ja mm ryðfría teina frá þekktum framleiðendum s.s. Wheelsmith, DT, Hoshi eða Union/Marwi. Hafið ný dekk undir hjólinu þegar lagt er af stað. Á markaðnum er mikið af dekkjum sem ekki henta til langferða vegna lélegrar endingar. Þau eru gerð úr mjúku froðukendu gúmmíi og eru hönnuð fyrir keppni. Notið dekk sem hafa gróft munstur með breiðum slitflötum ef ferðast á um malarvegi. Breið slétt dekk eru ekki góð. Þá er snertiflöturinn stór og mikill við malbikið sem gefur meira viðnám, hjólið skautar á lausamöl og í rigningu ausa dekkin upp meira vatni.

            Verkfæri eiga alltaf að vera með í ferðalögum. Nefnd skulu pumpa, Vicotorinox eða Leatherman vasahnífur sem inniheldur skæri og stjörnuskrúfjárni. dekkjaspennur, keðjulykill, 8mm fastan lykil og stundum 9mm og 10mm fyrir ódýrustu og eldri  hjólin, sexkantar á allar skrúfur og passandi teinalykill. Smáverkfærasett eins og CoolTool og Topeak innihalda ekki sérlega meðfærileg verkfæri og henta því best í neyðartilfellum. Keðjuolía fyrir reiðhjól t.d. Finish Line og lítinn tuskubút til að þrífa keðjuna. Ekki má svo gleyma nál og sterkum tvinna sem oft lengir líf ódýru tasknanna.

            Varahlutir þurfa að vera með því lítið fæst af þeim úti á landi eða til fjalla. Bætur, auka slanga, gíra- og bremsuvír, keðjuhlekkir, 2-4 bremsupúðar og 4 teinar með nipplum. Það fer svo eftir eðli og lengd ferðalagsins hvort meðferðis þarf að hafa varadekk. Þá er gott ráð að vera með “Kevlar”- dekk sem hægt er að brjóta saman og kemst fyrir í tösku. Bretti geta verið nauðsynlegur búnaður í rigningatíð ef ferðast á á malbiki eða fjölförnum malarvegum. Það er hins vegar ekki skynsamlegt ef ferðast á um torfæra slóða því ef grjót festist í dekkinu þá er hætta á því að brettið brotni og valdi jafnvel slysi. Bretti í sjálfu sér gera litið gagn ef ekki er góður drullusokkur á frambrettinu. Það er líka afar leiðinlegt að hlusta á steinvölur hringla í brettinu klukkustundum saman auk þess sem þau taka á sig vind.

Viðlegubúnaður.

Flestir eiga fyrir viðlegubúnað sem vel má nota í hjólreiðaferðalagið. Markmiðið er samt alltaf að komast af með sem minnst og hafa búnaðinn sem léttastan. Það eru til þeir sem finnst Kraft gallinn ómissnadi í ferðalagið. En ef ferðast á létt verða menn að skilja hann eftir heima.

            Tjaldið þarf að vera lítið, nett og halda vatni. Það er mikill kostur ef það hefur gott fortjald því í leiðinlegum veðrum þarf ekki að setja blautar töskur inn í tjaldið auk þess (þó ekki sé mælt með því) er hægt að elda í fortjaldinu í slæmum veðrum. Svefnpokinn þarf ekki að vera efnismikill. Ætti hann að vera eins efnislítill sem hver og einn telur sig geta komast af með. Poki u.þ.b. 1 kg að þyngd gerður fyrir 0  til -5°C hentar mörgum flesta daga sumarsins. Þá sjaldan sem hitastig fer niður fyrir skjálftamörk þá er um að gera að grípa til ullarnærfatnaðar og húfu. Er það búnaður sem hvort sem er þarf að fylgja með í ferðalaginu. Húfan gerir meira gagn en nokkurn grunar. Húfa sem nær niður fyrir eyru og lokar fyrir vindgnauði getur hjálpað mikið í baráttunni við mótvindinn því hávaðinn einn og sér þreytir hvaða mann sem er. Það gerir líka mikið gagn að sofa með húfu í miklum kulda.

Ekkert mál fyrir fjölskyldufólk

Ef fjölskyldufólk hefur hug á því að ferðast um á reiðhjóli er um ýmsa kosti að ræða. Þar þarf aðeins viljastyrk og áræðni svo losna megi úr viðjum vanans. Ef fjölskyldan treystir sér ekki til að fara í margra daga tjaldferðalag, þá er um að gera að nýta sér mikið úrval gististaða sem finna má um allt land.  

            Hægt er að fá tengivagna fyrir reiðhjól. Þeir eru í flestum tilfellum hannaðir með sæti fyrir tvö börn og eru með farangursrými. Þessir vagnar hafa verið til sölu í flestum nágrannalöndum um áratuga skeið og hafa sífellt orðið vinsælli vegna öryggis og ýmissa möguleika. Þeir vagnar sem þegar eru til í verslunum hér á landi eru frá Trek, Leggero, Winther og Chariot. Þeir hafa veltigrind, öryggisbelti og eru í skærum litum til að tryggja öryggi barnanna. Vagnar frá Trek eru einfaldir og ódýrir. Winther vagninn er með dempara, betri botngrind og Leggero vagninum má auðveldlega breyta í góðan farangursvagn. Ekki er ráðlegt að setja allan farangur í vagninn þar sem það þyngir aðeins undir fæti auk þess sem það torveldar stjórn á hjólinu. Mikill mótvindur tekur mikið á og má segja að þar liggi stærsti galli þessara vagna.

            Þegar barnið hefur vaxið upp úr vagninum eru fáanleg tengihjól í Erninum sem festast aftan í hjól foreldra. Barnið getur því byrjað að hjóla með foreldrinu þar til það eignast sitt eigið hjól.Til eru dæmi þess, og það hér á landi, að fjölskylda hafi selt bílinn sinn eftir að hafa eignast tengivagn. Því fylgir mikill kostur og má þar sérstaklega nefna aukin fjárráð og heilbrigðara líferni, ekki aðeins fyrir foreldrana heldur líka börnin.

Byrjendur, örvæntið ekki!

Að framansögðu mætti ætla að ferðalög á reiðhjóli séu aðeins fyrir moldríka tæknifíkla en það er alrangt. Góður búnaður til hjólreiða kostar aðeins brot af því sem árlegur rekstur bíls kostar. Það er engin ástæða til að örvænta þó að efnahagur leyfi ekki kaup á góðu hjóli eða búnaði. Flestir byrja aðeins á því ódýrasta og komast langt á því. Því er einfaldlega auðveldast að athuga hvort ekki séu hægt að nota þann viðlegubúnað sem þegar er til á heimilinu. Auk þess er tilvalið að ferðast með öðrum til að samnýta tjald eða annan viðlegubúnað og nota plastpoka til að verja hann gegn vætu, það er alltaf ódýrara en vatnsheld taska.

            Eins og fyrr segir þá stendur Íslenski fjallahjólaklúbburinnstuttum dags- og helgarferðum sem öllum er velkomið að taka þátt í. Í þeim ferðum má oft læra ýmislegt af reyndari hjólreiðamönnum. Þeir sem vilja fremur vera á sínum eigin vegum má benda á helgarferð til Nesjavalla. Er það hæfilega stutt frá Reykjavík til að allir ættu að komast það án vandræða. Nesjavallavegur er líka með tiltölulega litla bílaumferð. Tjaldferð yfir helgi til Þingvalla er einnig góð æfing fyrir langferð.

Ef það vantar frekari upplýsingar er alltaf gott að líta við á vefsíðunni hjá  Sheldon Brown. Þar er bókstaflega að finna allt sem skiptir hjólreiðar máli.

                                                                                                                                   Magnús Bergsson

 

Til baka á yfirlit