Heimasíða Vigdísar

Hér er að finna eitt og annað áhugavert

  Forsíða
  Fréttir frá Cardiff
  Greinar
  Fjölskylda
  Hver er Vigdís?
  English
  Erfðaráðgjöf
  Skóli
  Myndir
  Heilsutengdar heimsfréttir
  Hlekkir

Fjölskyldan
Ég hef búið í Grafarvoginum undanfarin níu ár en er nýflutt till Cardiff þar sem ég verð næstu tvö árin. Eftir í Grafarvoginum verður sonurinn Böðvar Darri ásamt kærustunni sinni, henni Kötu og á Kjalarnesi Árný Elsa með barnabörnin tvö, Steinar Helga og Önnu Katrínu.

Þar fyrir utan á ég soninn Agnar Tryggva, dótturina Árnýju Elsu og Steinar Braga  sem reyndar hefur kvatt þetta líf í von um annað betra.

Árný á tvö börn, þau Steinar Helga, sem er fæddur 6. október 1999 og Önnu Katrínu sem er fædd 19. nóvember 2003. Þau eru bæði indæl og skemmtileg (en ekki hvað?) og ef klikkað er á nöfnin þeirra, opnast heimasíður þeirra á Barnalandi.

Ég á líka fullt af systkinum sem af einhverjum undarlegum ástæðum hafa ákveðið að setjast að úti á landi en ekki í Reykjavík. Hreiðar bróðir er giftur henni Sólveigu og þau eiga Ragnar Bjarna. Hér er heimasíðan þeirra. Sem betur fer býr Hreiðar ekki langt í burtu, bara í Mosó, og því er hægt að heimsækja hann með góðu móti af og til. (Geri reyndar of lítið af því).

Hildur, tvíburasystir Hreiðars, býr í Eyjum. Hún er gift Óskari og á með honum tvo stráka, Hreiðar Örn og Óskar Elías. Þeir eru mestu gaurar og duglegir að taka til hendinni í sumarbústaðnum þeirra, Bestó.

Gunni, sem er ári yngri en ég, býr á Sauðárkróki. Hann er nýfluttur þangað frá Skagaströnd og á orðið þrjú barnabörn. Krakkarnir hans eru Sara, Ragna og Stefán. Sara á einn strák (fæddan í sept. 2004) og Ragna á tvo stráka.

Rikki býr líka í Eyjum. Hann á tvær stelpur,

Vigdís Stefánsdóttir - blaðamaður, vefstjóri og verðandi erfðaráðgjafi. Rafpóstur: vigga@islandia.is