Heimasíða Vigdísar

Hér er að finna eitt og annað áhugavert

  Forsíða
  Fréttir frá Cardiff
  Greinar
  Fjölskylda
  Hver er Vigdís?
  English
  Erfðaráðgjöf
  Skóli
  Myndir
  Heilsutengdar heimsfréttir
  Hlekkir

Það er ofurlítið óraunverulegt en um leið mjög svo spennandi að vera loksins komin til útlanda í nám. Eitthvað sem ég hef ætlað að gera í mörg herrans ár en núna fyrst er tækifærið komið. Og ég ætla að njóta þess í botn...:-)

Ef einhver skyldi ekki vita það, þá er skólinn sem um ræðir háskólinn í Cardiff eða Cardiff University sem reyndar sameinaðist í sumar öðrum háskóla, University of Wales. Eins og geta má nærri hefur þessi sameining orðið til þess að pappírsflóð hefur margfaldast og ýmsir örðugleikar komið upp á stjórnunarsviði. Margt sem þarf að samhæfa og sumt hefur verið gert á ansi ólíka vegu í skólunum. Nemar finna dálítið fyrir þessu en þó mest fyrir pappírsvinnunni og hugsanlega (nefni engin nöfn) töfum á tölvuinnsetningu.

Námið sem ég er í heitir MSc in Genetic Counselling eða meistaranám í erfðaráðgjöf. Við erum 12 í bekknum, 8 enskar og 4 ekki. Kennarar koma frá ýmsum stöðum og með mikla þekkingu. Tvo daga í viku er verklegt nám og fyrsta staðan mín í því er í Hollies skólanum, skóla fyrir fötluð börn.
Tvo daga erum við í akademísku námi og svo eru einstaka fyrirlestrar á milli. Skólinn er um margt ólíkur okkar háskóla en auðvitað eru greinarnar mismunandi. Það er ekki mikið um beina fyrirlestra í mínum bekk og áhersla lögð á að við spjöllum saman og við kennarann - sem sagt allt á jafningagrunni. Fyrir tæknifrík eins og mig, mætti nota tæknina meira og ég á eftir að skoða það nánar í samvinnu við kennarana...

Fyrsta vikan fór í að kynnast skólanum og umhverfi hans. Góð vika og margt brallað. Ég ætla að nota þessa síðu til að halda utan um námið og setja inn það sem mér finnst áhugavert.

Vigdís Stefánsdóttir - blaðamaður, vefstjóri og verðandi erfðaráðgjafi. Rafpóstur: vigga@islandia.is