Heimasíða Vigdísar

Hér er að finna eitt og annað áhugavert

  Forsíða
  Fréttir frá Cardiff
  Greinar
  Fjölskylda
  Hver er Vigdís?
  English
  Erfðaráðgjöf
  Skóli
  Myndir
  Heilsutengdar heimsfréttir
  Hlekkir

Það er von að þú spyrjir. Ég heiti sem sagt Vigdís og er Stefánsdóttir. Um ævina hef ég fengist við ýmislegt en aðalstarfið mitt síðustu árin hefur verið blaðamennska á mjög víðum grunni. Ég skrifa talsvert mikið fyrir Frjálsa verslun, hef ritstýri tímaritinu Uppeldi og barnablaðinu Æskunni. Þar fyrir utan hef ég skrifað nokkrar bækur, unnið sem almennur blaðamaður hjá Degi sáluga, DV og á fleiri stöðum. Undanfarið hef ég verið vefstjóri Læknadeildar, vefsins Lífvísis og fleiri sem of langt mál er að telja upp. Hér er sitthvað um fjölskylduna.

Samhliða vinnu hef ég verið að undirbúa mig undir meistaranám í erfðaráðgjöf við háskólann í Cardiff en það er tveggja ára nám. Nánar um það á skólasíðunni.

Ég er að dunda við að safna saman greinunum mínum á einn stað fyrir þá sem gaman hafa af því að lesa þær en það tekur tíma því þær eru margar og ég set bara inn þær sem ég vil eiga og þarf því að fara í gegn um safnið. Sumar eru reyndar ekki til hjá mér því þær eru bara á þeim fjölmiðli sem birti þær á sínum tíma.

Áhugamálin
Ég hef áhuga á flestu og nær öllu sem kemur mannlegri hegðan við. Nám er númer á áhugalistanum og þar er einmitt komin ástæða þess að þessi vefur varð til. Meira um það seinna.

Af daglegum áhugamálum má nefna bútasaum en ég gaf út íslenskt bútasaumsblað um nokkurra ára skeið og ætlar raunar að halda því áfram þegar tími gefst til.  Hér er svo íslensk bútasaumssíða.
Ég er mikið hrifin af ýmsum hannyrðum og föndri og hef verið með námskeið í ýmsu slíku. 
Einu sinni gaf ég líka út prjónablaðið Allt prjónað en það var á meðan mér fannst prjón skemmtilegast af öllu. 

Bækur eru líka ofarlega á lista hjá mér og ég les ósköpin öll og hef alltaf gert. Því er Borgarbókasafn Reykjavíkur í miklu uppáhaldi og það heimsæki ég aldrei sjaldnar en vikulega og helst oftar.
Mér finnst líka gaman að dansa, fara í gönguferðir, synda, syngja, tala við fólk, reita arfa, lesa ljóð, skoða Netið, baka, elda góðan mat og ferðast.

Félagsstörf

Þar sem ég hef ákaflega gaman af því að vera með fólki, er ég auðvitað í nokkrum félögum. Fyrst skal til taka Rótarýklúbb Grafarvogs, en hann var stofnaður árið 2001 og ég var forseti hans annað starfsárið..
.
Ég er í stjórn Íbúasamtaka Grafarvogs sem lætur til sín taka í Grafarvoginum, stýrihópnum Grósku í Grafarvogi, Hverfisnefnd Grafarvogs og í safnaðarstjórn Grafarvogskirkju. Þetta verður þó allt að geymast næstu tvö árin en ég ætla reyndar að taka þátt í starfi rótarýklúbbs hér í Cardiff - meira um það síðar.

Vigdís Stefánsdóttir - blaðamaður, vefstjóri og verðandi erfðaráðgjafi. Rafpóstur: vigga@islandia.is