Heimasíða Vigdísar

Hér er að finna eitt og annað áhugavert

  Forsíða
  Fréttir frá Cardiff
  Greinar
  Fjölskylda
  Hver er Vigdís?
  English
  Erfðaráðgjöf
  Skóli
  Myndir
  Heilsutengdar heimsfréttir
  Hlekkir

26.09.2004 - Nýtt líf - eða þannig

Þá er ég komin til Cardiff. Loksins komið að því sem ég hef verið að stefna að síðustu 2-3 árin með vinnu og námi! Eins og alltaf þegar maður flytur búferlum, er eitt og annað sem þarf að gera til að koma sér fyrir. Það gengur misvel en þar sem ég hafði ekki mikið af dóti með mér, eiginlega frekar lítið miðað við það að hér ætla ég að búa í tvö ár - hefur þetta gengið tiltölulega þrautalaust fyrir sig.

Ég flaug til Stansted og Árný og þrjár vinkonur hennar komu með undir því yfirskyni að ætla að fylgja mér. Það kom þó fljótt í ljóst að tilgangur þeirra var annar og að þær ætluðu að skemmta sér en ekki fylgja mömmu gömlu eitt eða neitt. Sem var auðvitað bara besta mál og ég gat svo sem alveg komist þetta ein - nema bara rétt yfir hafið því farangurinn var heldur þyngri en hefðbundin 25 kg leyfa. Bara bækurnar voru 25 kg og þó var ég búin að fara með um það bil helminginn hingað í sumar. Restin var um það bil 35 kg svo það sést nú hvað er efst á baugi hjá mér!

Við ókum frá Stansted og ætluðum að finna hótelið sem við vorum búnar að bóka gistingu á. Ef ég hefði vitað fyrirfram að við ætluðum að aka, hefði ég sennilega bókað hótel við Stanstead en ekki inni í London. Það tók okkur góða stund að komast og finna hótelið og við vorum orðnar þreyttar og lúnar.

Daginn eftir, á fimmtudeginum, fórum við af stað með það að leiðarljósi að koma mér á Heathrow þar sem rúta frá skólanum átti að bíða eftir mér (og auðvitað fleiri nemendum). Eftir að hafa þvælst í bílnum í 2-3 tíma, sá ég að það yrði fljótlegra að taka lest og fór fram á að við finndum lestarstöð þar sem ég gæti tekið Piccadilly-línuna beint. Það tókst og ég komst á flugvöllinn og fannt fólk frá skólanum. Við ókum sem leið lá til Cardiff og þegar þangað kom fór bíll með mig og farangurinn heim að dyrum. Ég fann herbergið hjálparlaust og kynntist þremur af fjórum meðleigjendum mínum.

Tvær stúlknanna eru með mér í námi en hinar tvær ekki. Kathy og Vicky heita þær sem eru með mér og þær eru elskulegar og skemmtilegar báðar tvær. Hinar eru mjög ungar, önnur frá Spáni og heitir Anna og hin frá Grikklandi. Þær eru mjög feimnar og segja fátt og láta lítið fyrir sér bera.

Fram að þessu hef ég labbað í kring, við Kathy skoðað okkur um og keypt inn það sem okkur fannst vanta og ég reynt að komast í netsamband. Það gengur brösuglega enn sem komið er en mun vonandi lagast fljótlega. Í fyrrakvöld var grillkvöld hjá erlendum (international) stúdentum og við fórum. Þetta var skemmtilegt kvöld og við kynntumst fólki en biðin eftir matnum var löng og á endanum buðum við þeim sem við sátum hjá að koma með okkur heim og kaupa mat í leiðinni. það varð úr og við sátum hér og horfðum á merkilega mynd og spjölluðum fram eftir.

Í dag fór ég í ferðalag um Wales með 400 samnemendum mínum (sjá myndir á www.gen.is/myndir þegar ég hef komið í verk að setja þær inn). Við fórum fyrst að risastórri kolanámu og fengum að fara niður í göngin. Þetta var mjög svo merkilegt því þessi náma er ein sú stærsta í Wales og var lokað fyrir ekki mjög mörgum árum.

Svo fórum við í þorp sem eru bara verslanir. Mér fannst það ekki skemmtilegt en á eftir fórum við í Caerphylli kastala. Þar fengum við greinargóða leiðsögn og ég tók massa af myndum. Stórmerkilegt fyrirbæri þessi kastali sem er næst stærsti kastali á Bretlandseyjum. Ég keypti tvær litlar bækur sem ég ætla að nota til að læra welsku og til að læra um staðaheiti hér. Málið er næstum því ómögulegt að bera fram en úr því fólk getur lært það hér, hlýt ég að geta það líka :-)

Annars höfum við Kathy verið duglegar (hún þó duglegri) að lesa okkur til um tölfræðina á bak við erfðir sjúkdóma. Skólinn byrjar á morgun og mér skilst að það verði engin elsku mamma með það...svo það er eins gott að bretta upp ermarnar og vera duglegur!

Framhald...

Vigdís Stefánsdóttir - blaðamaður, vefstjóri og verðandi erfðaráðgjafi. Rafpóstur: vigga@islandia.is