DAVID MICHAEL
KENNEDY
Fallegar svart/hvítar myndir af
frægu fólki og minna frægu. Einnig landslagsmyndir og myndir af
indijánum. Mjög góð síða. |
HANS VAN DER POL
Hér er mikið af svart/hvítum
landslagsmyndum, þar á meðal frá Íslandi. Þetta er ein allra besta
síðan á netinu, að mínu mati. Kíktu á þessa. |
GARY CHRISTOPHER WAGNER
Einstaklega fallegar myndir frá
hinum og þessum þjóðgörðum í Bandaríkjunum. Síða sem ég mæli
eindregið með. Feiknagóð. |
LEE MANN
Flestar myndirnar á þessari
síðu eru í lit, en engu að síður frábærar myndir. Um er að ræða
plaggöt af alla vega landslagi. Mæli með þessari. |
ROY HARRINGTON
Svart/hvítar myndir frá Grand
Canyon og fleiri stöðum. Nokkuð svo góð síða. Mæli með henni.
|
BILL ATKINSON
Myndirnar á þessari síðu eru
meiri háttar góðar. Að vísu allt saman litmyndir, en síða sem
enginn má láta fram hjá sér fara. Landslagsmyndir í hæsta
gæðaflokki. Þess má geta að þessi náungi var fyrrum forritari hjá
tölvurisanum Apple. |
SIGHT
Þetta er ljósmyndatímarit á
internetinu. Athyglisverð síða sem vert er að skoða. |
TIME LIFE
Hér er að finna margar frábærar
myndir eftir marga bestu ljósmyndara heims. Mjög skemmtileg síða sem
engin ætti að láta fram hjá sér fara. |
WEBPHOTO
Þetta er einhvers konar
tengla-síða fyrir ljósmyndaáhugamenn. Þarna er fullt af góðum
tenglum, en einnig mikið af miður slæmum. |
PHOTO
Þetta frábæra ljómyndatímarit
er komið á netið og er hér að finna margt skemmtilegt sem tengist
ljósmyndun. Eini gallinn er að hún er mest megnis á frönsku. Samt
mjög góð. |
Panoramic Image
Hér eru margar frábærar panorama
myndir eftir hina og þessa. Ekki láta þessa fara framhjá þér. Þú
munt ekki verða fyrir vonbrigðum. |
Patrick
Sorrente
Flottar myndir frá þessum franska
ljósmyndara. Mannlíf, stillur og gömul hús. Bæði í lit og svart
hvítar. Athugið sérstaklega bílamyndirnar frá Kúbu.
|
BONNI
Hér er svo að lokum íslenskur
tengill inná heimasíðu ljósmyndarans Bonna, en þar er að finna
nokkrar skemmtilegar myndir sem hann hefur tekið og þá þjónustu sem
hann hefur uppá að bjóða.
|