Dansk Svenska English Barðsneshlaup á Facebook @ infó   s&s  
Aftur á forsíðu.
Vertu með í Barðsneshlaupi!
... BARÐSNESHLAUP
... HELLISFJARÐARHLAUP
... SKRÁNING
... BESTU TÍIMAR
... FRÉTTIR
... SÖGUR
... UMSAGNIR
... AÐSTANDENDUR
... SPURT & SVARAÐ
... MYNDIR
... VÍDJÓ
... PODCAST
BARÐSNESBÍÓ
Smelltu til að horfa á viðtal
Viðtal við Þorberg Barðsneskóng
STYRKTARAÐILAR
Fjölmargir koma að skipulagningu Barðsneshlaupsins. Hér eru nefndir helstu styrktaraðilarnir:
Íslandsbanki
Rúmfatalagerinn
SÚN Fjarðasport
Neistaflug
Ölgerðin
Björgunarsveitin Gerpir
Hlaup.is
Sundlaugin í Neskaupstað
SAGAN


Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð og Hellisfjörð fór í eyði fyrir og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes, Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur, Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.

Í Viðfirði var áður höfuðból og mjög reimt. Þar stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út í Viðfjörð til 1949 en þá var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar og farþegar ferjaðir með bát frá Viðfirði til Neskaupstaðar.
23. júlí 2013
Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup 2013
Sautjánda Barðsneshlaupið verður haldið í Norðfirði laugardaginn 3. ágúst næstkomandi. Einnig verður boðið upp á 13 km Hellisfjarðarhalup eins og fyrri ár.

SKRÁNING Í BARÐSNES- OG HELLISFJARÐARHLAUP
FER FRAM Á HLAUP.IS

Gjaldið er 4.500 fyrir Barðsneshlaup og 3.500 fyrir Hellisfjarðarhlaup.

Fyrstu 25 hlaupararnir sem skrá sig í Barðsnes og Hellisfjörð fá boli merkta Barðsneshlaupi frá 66°N.

3. júlí 2012
Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup 2012
Sextánda Barðsneshlaupið verður haldið í Norðfirði laugardaginn 4. ágúst næstkomandi. Einnig verður boðið upp á 13 km Hellisfjarðarhalup eins og fyrri ár.

SKRÁNING Í BARÐSNES- OG HELLISFJARÐARHLAUP
FER FRAM Á HLAUP.IS

Gjaldið er 4.500 fyrir Barðsneshlaup og 3.500 fyrir Hellisfjarðarhlaup.

25 fyrstu sem skrá sig í Barðsnes og 25 fyrstu sem skrá sig í Hellisfjörð fá boli merkta Barðsneshlaupi og 66°N.

Mynd: Steinunn Rósa 3. ágúst 2011
Tímar í Barðsnes- og Hellisfjarðar-
hlaupi 2011

Tímar í Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaupi eru nú komnir inn á Hlaup.is. Þátttka að þessu sinni var eins og verið hefur undanfarin ár.

Elsta konan sem hljóp að þessu sinni er fædd 1956, en það var Sigrún Konráðsdóttir úr Reykjavík sem kom sú 29. í mark á tímanum 03:41:03.

Elsti karlinn var sem fyrr Ingólfur S. Sveinsson, upphafsmaður hlaupsins, fæddur 1939 og kom hann 30. í mark á tímanum 03:42:01.

Engar bætingar voru á 10 bestu tímum karlhlaupara, en konurnar bættu sig nokkuð og sérstaklega í Hellisfjarðarhlaupi > Sjá bestu tíma í hlaupunum í gegnum árin.

Hér fyrir neðan má sjá fimm fótfráustu hlauparana í kvenna- og karlaflokki Barðsneshlaupsins og svo þá tíu fyrstu sem skiluðu sér í mark í Hellisfjarðarhlaupinu.

BARÐSNESHLAUP 27 KM
1. Þorbergur Ingi Jónsson 02:03:29
2. Stefán Viðar Sigtryggsson 02:26:40
3. Trausti Valdimarsson 02:35:33
4. Sindri Þorkelsson 02:36:53
5. Fannar Baldursson 02:37:42

1. Gerður Guðmundsdóttir 02:50:05
2. Jóhanna Margrét Guðlaugsdóttir 03:05:53
3. Sigrún Björk Sigurðardóttir 03:07:04
4. Brynhildur Sigurðardóttir 03:08:01
5. Asdís Káradóttir 03:10:49

HELLISFJARÐARHLAUP 13 KM
1. Örnólfur Oddsson 01:01:17
2. Arnar Halldórsson 01:03:11
3. Gunnar Atli Fríðuson 01:04:24
4. Hjálmdís Zoega 01:05:18
5. Guðjón Ásmundsson 01:07:07
6. Védís Harpa Ármannsdóttir 01:07:40
7. Sonja Sif Jóhannsdóttir 01:09:09
8. Erlín Emma Jóhannsdóttir 01:19:09
9. Rán Kristinsdóttir 01:20:11
10. Valgarður Gíslason 01:20:17

> Myndir frá hlaupinu má sjá í myndavef Steinunnar Rósu

Hlaupið 2010

19. júlí 2011
Vefskráning hafin í Barðsnes-
og Hellisfjarðarhlaup

Forskráning í Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup er hafin og stendur til kl. 23:30 miðvikudaginn 27. júlí. Barðsneshlaup 27 km kostar kr. 4.500 og Hellisfjarðarhlaup 13 km kostar kr. 3.500. ATH! að EKKI verður tekið á móti skráningum á bryggjunni eins og verið hefur og því er um að gera að skrá sig sem fyrst. Skráning er á Hlaup.is

11. júlí 2011
Barðsneshlaupið komið á Facebook
Nú styttist í fimmtánda Barðsneshlaupið, en það var Ingólfur Sveinsson, læknir og upphafsmaður hlaupsins, sem hljóp þessa leið skipulega í fyrsta skipti við fjórða mann sumarið 1997.

Barðsneshlaupið og Hellisfjarðarhlaupið verður að venju á dagskrá Neistaflugs í Neskaupstað laugardaginn 30. júlí um verslunarmannahelgina næstu. Fylgist með hér í vefnum og á Fésbókinni!


> Lesa eldri fréttir

TÍMARNIR
Tímar í Barðsnes- og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES OFF ROAD RUN
The Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur the first Saturday in August. Read more
FRÉTTIR
7. ágúst 2007
Nýtt met í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!

Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið þátt; 28 hlauparar voru skráðir í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes undir þremur tímum. Meira
SÖGUR ÚR HLAUPINU
„Sjö km inn í Viðfjörð, sex inn í Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann og þaðan hellingur í bæinn. Svona skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla leið.“ Lesa
UMSAGNIR
„Það voru þreyttir en ánægðir menn sem báru saman bækur sínar í heitu pottunum að hlaupi loknu. Var það almennur rómur okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við hefðum tekið þátt í.“ Meira

eXTReMe Tracker
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR


Gisting Tvö hótel eru í Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði með ágætri þjónustu. Hótel Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan afslátt af gistingu. Meira
Vefhönnun & umsjón: MÍNERVA - miðlun og útgáfa | vefstjóri: kristinn@minervamidlun.is
Vertu vinur! Vertu vinur Barðsneshlaupsins á Facebook