Dansk Svenska English Barðsneshlaup á Facebook @ infó   s&s  
Aftur á forsíðu.
Vertu með í Barðsneshlaupi!
... BARÐSNESHLAUP
... HELLISFJARÐARHLAUP
... SKRÁNING
... BESTU TÍIMAR
... FRÉTTIR
... SÖGUR
... UMSAGNIR
... AÐSTANDENDUR
... SPURT & SVARAÐ
... MYNDIR
... VÍDJÓ
... PODCAST
BARÐSNESBÍÓ
Smelltu til að horfa á viðtal
Viðtal við Þorberg Barðsneskóng
STYRKTARAÐILAR
Fjölmargir koma að skipulagningu Barðsneshlaupsins. Hér eru nefndir helstu styrktaraðilarnir:
Íslandsbanki
Rúmfatalagerinn
SÚN Fjarðasport
Neistaflug
Ölgerðin
Björgunarsveitin Gerpir
Hlaup.is
Sundlaugin í Neskaupstað
SAGAN


Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð og Hellisfjörð fór í eyði fyrir og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes, Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur, Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.

Í Viðfirði var áður höfuðból og mjög reimt. Þar stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út í Viðfjörð til 1949 en þá var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar og farþegar ferjaðir með bát frá Viðfirði til Neskaupstaðar.
Barðsnes 2003
eftir Kristin Pétursson

Ég var mættur á Neistaflug í Neskaupstað enn einu sinni og hafði þó ekki hlaupið Barðsnesið frá því 1999 að ég rak lest níu hlaupara. Síðan þá hafði ég á hverju sumri lofað sjálfum mér og öðrum að bæta þá skammarlegu frammistöðu. Nú var ekki lengur hlaupið frá því loforði þótt formið væri ekki sem best; látum reyna á það!

Barðsneshlaupið er um margt sérstakt hlaup. Fyrir það fyrsta eru hlauparar ferjaðir frá marklínu hlaupsins í Neskaupstað á slöngubát yfir fjörðinn á Barðsnesið þaðan sem hlaupið er. Þegar svo hlauparar eru komnir af stað þurfa þeir að renna um mýrar og mold, hlaupa í urð og grjóti, stökkva yfir læki og vaða ár, hlaupa um holt og hæðir. En það er einmitt þessi temmilega torfæra braut sem gerir Barðsneshlaupið svo skemmtilegt og fallegt er landið.

Smelltu til að stækka.
ÞRÍR FIRÐIR BARÐSNES-
HLAUPSINS
Barðneshlaupið er hlaupið um þrjá firði Norðfjar-
ðarflóans sem mynda eins konar þriggja fingra glófa eða krumlu sem hefur grafið sig inn í skaga þann sem liggur á milli enn dýpri fjarða, það er Mjóafjarðar að norðanverðu og Reyðarfjarðar að sunnanverðu. >STÆKKA<
Á slöngubáti
yfir fjörðinn

Ég fór á fætur upp úr klukkan sjö og byrjaði á því að gá til veðurs: skýjað og þoka yfir fjöllum og fjörðum. Úps, betra væri að sjá niður fyrir sig og skemmtilegra að hafa fallegt útsýni að dreifa huganum við hlaupið. Þetta lagast, hugsaði ég, og hellti upp á kaffi.

Rétt fyrir kl. níu skokkaði ég niður á litlu bryggjuna við hið s.k. Neistaflugsplan, þar sem nú er búið að breyta gamalli skemmu í flott safn. Veðrið var milt, allt að létta til og útlit fyrir heitan dag – of heitan fyrir langhlaup. Á bryggjuna voru mættir nokkrir þeirra hlaupara sem ætluðu eins og ég að hlaupa í fyrra hollinu, en líka aðrir að forvitnast og drekka í sig stemmninguna. Skipuleggjendurnir Jóhann og Rúnar fóru yfir leiðina, drykkjarstöðvar og önnur grunnatriði hlaupsins. Spenntum svo á okkur björgunarbeltin og stukkum um borð í slöngubát björgunarsveitarinnar sem kenndur er við drauginn Glæsi – meira um hann á eftir – og brunuðum yfir fjörðinn.

Ingólfur Sveinsson, sumarbóndi í Barðsnesi, tók á móti okkur hinum megin og bauð okkur velkomin að rásmarkinu við bæ sinn. Nú var eitt og annað fleira sem hlauparar vildu vita og svaraði hann spurningum okkar af alúð, en brýndi líka fyrir okkur að drekka vel á leiðinni færi svo sem horfði til að dagurinn yrði heitur. Svo stilltum við okkur upp fyrir myndatöku; sjö hleypigikkir og Ingólfur að auki, sem sagðist ætla hlaupa þetta í rólegheitum. Klukkan tíu héldum við af stað og fyrir höndum, eða fótum öllu heldur, var allt að fjögurra klukkustunda ferðalag sem ég vissi náttúrlega ekki hvernig myndi enda, en vonaði innilega að ég kæmist heill á leiðarenda og helst á betri tíma en síðast!

Sjö km inn í Viðfjörð, sex inn í Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann og þaðan hellingur í bæinn. Svona skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla leið. Við vorum fimm sem vorum samferða mestan hluta leiðarinnar og veitti það gott aðhald. Ég blotnaði strax í fæturna í daggarvotu grasinu við Barðsnesbæinn og var því ekkert að tefja við að tipla á steinum yfir lækina fjölmörgu á leiðinni, lét bara vaða. Veður var vott á Austurlandi þetta sumarið og því vantaði ekkert í mýrar og læki. Þegar inn í Viðfjörð er komið er sá lúxus í boði að fara yfir fjarðarána á hengibrú. Hellisfjarðaráin er hins vegar vaðin og var bara líkn lúnum fótum að fá svolitla kælingu. Þrettán km að baki; skellti í mig orkugeli úti í miðri á og renndi niður með bergvatninu. Veitti ekki af, því nú tók við töluverð hækkun.

Sagan
Barðsnesbærinn fór eyði árið 1952 en er nú sumarhús Ingólfs Sveinssonar geðlæknis sem þarna er fæddur og uppalinn. Ingólfur er upphafsmaður Barðsneshlaupsins sem fyrst var hlaupið um verslunarmannahelgina 1997. Þá hljóp hann við fórða mann leiðina frá bænum um firðina þrjá inn að Neskaupstað. Hefur Barðsneshlaupið verið þreytt um hverja verslunarmannahelgi síðan þá og er nú orðið að föstum lið í Neistaflugshátíðinni í Neskaupstað. Æ fleiri taka nú þátt í hlaupinu, jafnt sterkir hlauparar sem og hinir sem meira eru með fyrir ánægjuna í þessu stórskemmtilega hlaupi, en að sögn skipuleggjenda hlaupsins mættu þeir vera fleiri.

Allir skila sér
Ég er nú kominn upp Götuhjallann og hef engan tíma til að taka þar banana og súkkulaðirúsínur sem ég hafði beðið einn Ingólfssona að ferja þangað. Hendist þess í stað áfram og niður fjallið en missi þó tvo af mínum ágætu hlaupanautum fram úr mér. Allt í lagi með það, ég er ánægður með mig og trúi að ég nái marki og í þokkalegu standi.

Minn helsti bömmer úr fyrra hlaupinu var einmitt þegar ég var kominn upp á gjötuhjalla Hellisfjarðarmúlans og sá yfir Norðfjörðinn yfir til Neskaupstaðar og fannst að nú væri stutt eftir. En það er nú öðru nær, því fyrst er að hlaupa niður fjallið, sem er erfiðasti leggur leiðarinnar að mínu mati, inn fjörðinn, yfir Norðfjarðarána og svo upp á veg sem leið liggur inn í bæinn. Þetta gerir um 10 km sem eins gott er að gera ráð fyrir! Og það gerði ég í þetta skiptið og hafði það af í mark á fínum tíma, þreyttur, en afskaplega ánægður með skemmtilegt hlaup. Norðfjarðaráin þótti ekki væð þetta skiptið og voru hlauparar því ferjaðir yfir á björgunarsveitartrukki.

Það bar til tíðinda þetta árið að sigurvegari síðustu hlaupa og heimamaðurinn Þorbergur tók ekki þátt vegna meiðsla. Því var það aðkomuhlauparinn Guðmann Elísson sem hreppti Barðsnesbikarinn að þessu sinni og var vel að honum kominn. Guðmann hafði tekið þátt í hlaupinu í fyrsta skipti árið áður og þá náð öðru sæti, en nú tókst honum að sigra og segir að hlaup sín um Barðsnes verði fleiri. Guðmann þurfti reyndar að hafa ögn meira fyrir sigrinum en fyrirrennarar hans, því hann brotnaði á annarri hendinni þegar hann bar hana fyrir sig við eitt fallið á hraðri yfirferð sinni um grýtta og oft torfæra brautina.

Slakað á í sundi
Eftir verðlaunaafhendingu fara flestir hlauparanna í sund og láta heita vatnið gera vel við þreytta vöðvana. Sundlaugin í Neskaupstað er geysifalleg þar sem hún liggur í fjallshlíð Norðurfjallsins; úr heita pottinum er útsýn góð upp í fjallið og út á fjörðinn. Í pottinum er farið yfir hlaupið og sagðar sögur. Í þetta sinn var það Norðfirðingur sem sagði okkur hlaupurunum frá víðfrægum draugagangi í Viðfirði – þar sem við höfðum hlaupið fyrr um daginn – og drauginum Glæsi. Sá var víst franskur skipstjóri sem bóndi nokkur fann í fjöru nær dauða en lífi eftir skipsskaða og hjálpaði yfrum vegna forláta gullhnappa, að því er sagan segir. Bóndinn á að hafa farið með franska rekann eins og hann var vanur með þorskana sína, afhausað hann, og síðan þá hefur sá hauslausi sveimað um sveitir, tekið ofan fyrir ferðamönnum og stungið sínu höfuga höfuðfati undir aðra höndina.

Það bar ekki á öðru en að hlauparar allir væru ánægðir með hlaupið og svo var einnig með mig. Bestu þakkir til skipuleggjenda hlaupsins, björgunarsveitarmanna og samferðafólks - og kærar þakkir til Báru Agnesar fyrir orkugelið, ég held það hafi alveg gert gæfumuninn. Barðsnesið fer ég aftur og enn aftur, endist mér þrek og þor.
TÍMARNIR
Tímar í Barðsnes- og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES OFF ROAD RUN
The Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur the first Saturday in August. Read more
FRÉTTIR
7. ágúst 2007
Nýtt met í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!

Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið þátt; 28 hlauparar voru skráðir í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes undir þremur tímum. Meira
SÖGUR ÚR HLAUPINU
„Sjö km inn í Viðfjörð, sex inn í Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann og þaðan hellingur í bæinn. Svona skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla leið.“ Lesa
UMSAGNIR
„Það voru þreyttir en ánægðir menn sem báru saman bækur sínar í heitu pottunum að hlaupi loknu. Var það almennur rómur okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við hefðum tekið þátt í.“ Meira

eXTReMe Tracker
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR


Gisting Tvö hótel eru í Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði með ágætri þjónustu. Hótel Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan afslátt af gistingu. Meira
Vefhönnun & umsjón: MÍNERVA - miðlun og útgáfa | vefstjóri: kristinn@minervamidlun.is
Vertu vinur! Vertu vinur Barðsneshlaupsins á Facebook